Öflugasti götuskráði bíll landsins...?

#1
...Allaveganna einn sá öflugasti, og sá öflugasti í Benz flotanum í dag.

Mercedes Benz E55 AMG Kleemann er kominn aftur á götuna!

Bíllinn er framleiddur 2004 en ég þori ekki að fullyrða hvort hann kom til landsins 2006 eða 2007. Bíllinn var fluttur inn með Kleemann breytingu og vel mapaða mótortölvu. Of vel kanski. Einhverjir muna eflaust eftir honum á uppboði í sumar þar sem hann var auglýstur vélarvana. Bíllinn komst á fullt skrið um miðbik þessa viku, eftir að Kleemann mótorinn hafði verið tekinn úr fyrr í sumar og notaður E55 AMG mótor kom að utan í síðustu viku. Kleemann hlutirnir úr gamla mótornum voru fluttir yfir í þann "nýja" og því er þetta fyrsti AMG mótorinn sem er Kleemann breytt hér heima.

Mótortölvan var send út til Kleemann í Þýskalandi og hún möpuð fyrir þá breytingu sem í honum er. Aðspurðir Kleemann mennirnir hvort bíllinn þyrfti ekki að vera á staðnum svo hægt væri að prófa hann, kom einfaldlega það svar að það skipti engu máli, þeir vissu hvað þeir væru að gera því þeir væru bestir í bransanum. Samkvæmt tölum frá Kleemann mælist bíllinn rúm 620 hestöfl og yfir 800nm í tog. Þið getið rétt ýmindað ykkur andlitið á manni þegar maður gefur þessu inn, þvílíka aflið.

Mikið hefur verið lagt upp úr útlitinu á bílnum, hvert smáatriði er úthugsað. Það sem helst ber að nefna varðandi útlitsbreytingu á bílnum er:
Framstuðari. Kringlótt þokuljós, og "shark" rákir á hliðum.
Engin stjarna rís upp úr húddinu, heldur bara Mercedes merki, sem gefur auga um það að þetta er enginn venjulegur Benz.
Speglar, ekki þessir hefðbundnu W211 speglar, kominn bragur af W212 og W204. Frístandandi speglar, ólíkt því sem hinn venjulegi E-class hefur.
Felgur, 20" Lorinser felgur. Fallegar felgur. Felgurnar líta út eins og flugvélaspaðar, eða túrbína á snúning meðan bíllinn lullar eftir götunni.
Lip á skottlok. Eflaust það fallegasta sem Benz hefur stolið af BMW. Breytir svipnum á bílnum alveg all rosalega.
Það á eftir að fríska afturendann ögn meira upp með öðrum ljósum og stuðara. Óhætt er að segja að hér fer einn fallegasti Benz landsins um göturnar, allaveganna sá öflugasti.

[img]http://photos-h.ak.fbcdn.net/hphotos-ak ... 9844_n.jpg[/img]

[img]http://photos-a.ak.fbcdn.net/hphotos-ak ... 2506_n.jpg[/img]

[img]http://photos-b.ak.fbcdn.net/hphotos-ak ... 6879_n.jpg[/img]

Þetta er bara græja 8)

Andri Hrafn
---

Mercedes Benz E220 W124 1995
Subaru Forrester 2005,
Yamaha WR 450 F 2004

Re: Öflugasti götuskráði bíll landsins...?

#4
Sælir og fínar myndir hjá þér.

Ég er víst eigandinn af þessum bíl í félagi við bróður minn.

Geri ráð fyrir að þú sért að vinna hjá Guðjóni eða e-h tengdur honum og alveg sjálfsagt að leyfa þér að smella af nokkrum myndum og leyfa öðrum að líta bílinn og slúðra e-h vitleysu um hann...;)

Eins bara gaman ef brósi hefur leyft þér að taka aðeins í og upplifa þetta kvikindi.

Þessi þurfti nú smá umönnum þegar við eignuðumst hann og fyrir utan augljósa vélarviðgerð sem þurfti að framkvæma er búið að sprauta framendann og fleira á honum, skipta um IC pumpu, ný dekk og fl. og fl.
Einnig var ljóst að eina vitið var að taka út það mapp sem var á ECU-inu, en án þess að draga úr því að það hafi verið gert af fagmanni þá var ljóst að allt var á nippinu, fyrir utan að ekki er sérlega hentugt að keyra eingöngu á 98 eins og virtist hafa verið málið.

Slatti í textanum hjá þér sem er ekki alveg rétt en skiptir kannski ekki öllu svo sem.... En helst kannski er þetta nú bara venjulegur E63 framstuðari og speglarnir sömuleiðis af facelift bíl. Að taka leigubílamerkið af er svo einnig nokkuð algengt held ég bara. Kleemann eru svo reyndar í DK.

Veit ekkert hvað bíllinn er að skila í hestöflum en hann virkar gríðarlega vel með þessum Kleemann breytingum(bestir í bransanum eða ekki!?) og nýju ECU mappi frá þeim og á það að skila ca. þeim hestöflum sem þú nefnir.

kv,
Svenni

Re: Öflugasti götuskráði bíll landsins...?

#6
Hr .X eins og margir þekkja mappaði þennan bíl síðasta vor, tók þá Kleeman mappið úr honum og bjó til nýtt mapp í hann. Hann mappaði bílinn minn i vor og þá spurði ég hann aðeins útí þennan bíl. Hann sagði að mappið sem var í honum frá Kleeman gæti ekki gert annað en að slátra þessum mótor. Hann sagði líka að Kleeman væri drasl, ekki hef ég neina reynslu af þeim en hr. x veit sennilega hvað hann er að tala um. Þannig það er semsagt búið að taka mappið úr honum sem hann bjó til stuttu áður en mótorinn fór, var orðinn skemmdur eftir mappið frá Kleeman, vona bara að mótorinn fari ekki aftur...
Mercedes Benz E 55 AMG Kompressor 2003

Mercedes Benz E 500 2003

Mercedes 500 SL 1992

Mercedes 560 SEC 1991

Og eitthvað meir...

Re: Öflugasti götuskráði bíll landsins...?

#7
Andri skrifaði:Hr .X eins og margir þekkja mappaði þennan bíl síðasta vor, tók þá Kleeman mappið úr honum og bjó til nýtt mapp í hann. Hann mappaði bílinn minn i vor og þá spurði ég hann aðeins útí þennan bíl. Hann sagði að mappið sem var í honum frá Kleeman gæti ekki gert annað en að slátra þessum mótor. Hann sagði líka að Kleeman væri drasl, ekki hef ég neina reynslu af þeim en hr. x veit sennilega hvað hann er að tala um. Þannig það er semsagt búið að taka mappið úr honum sem hann bjó til stuttu áður en mótorinn fór, var orðinn skemmdur eftir mappið frá Kleeman, vona bara að mótorinn fari ekki aftur...

Jebb,, margt af þessu dóti frá STÓRU strákunum .. er hreinlega ekkert að virka eins og það á að virka

SL 55 bíllinn sem er með CARLSSON breytingunum er sorglegt dæmi,,

ALLT .. sem hefur bilað í bílnum er CARLSSON í einu og öllu

Mr. X gefur frat í Kleemann og Carlsson,,
ath .. hann er töffari,, en hann veit ALGERLEGA upp á tíu hvað henn er að tala um

er búinn að taka 2 bíla fyrir mig og eru það OLD school dæmi ,,

BT bíllinn hjá mér er listilega vel uppfærður frá honum
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507

http://alpina.123.is/pictures/

Re: Öflugasti götuskráði bíll landsins...?

#8
Ég skal viðurkenna það að ég hef ekki mikið álit á manni sem breytir dýrum og flóknum bílum og getur ekki einu sinni komið undir nafni.

En engu að síður þá getur vel verið að þessi maður kunni til verka á ákveðna bíla, skil samt ekki hvað einhver töffari á að geta gert betur,,, eða meir en þau fyrirtæki sem gefa sig frá A-Ö í þessa vinnu, með sína eigin verkfræðinga, tæknifræðinga og hvað þau starfsheiti heita nú öll sömul. Á nú bágt með að trúa því að Kleemann bíllinn sem um ræðir í þessum þræði hafi stútað mótor vegna mapi sem kemur frá því breytingafyrirtæki sem breytir bílnum, miðað við þann búnað sem í honum er.

Einnig liggur á mér sú forvitni um hvorn SL Carlsoninn þú ert að tala um, því ég veit það fyrir víst að annar þeirra tekur ekki feilpúst.
Andri Hrafn
---

Mercedes Benz E220 W124 1995
Subaru Forrester 2005,
Yamaha WR 450 F 2004

Re: Öflugasti götuskráði bíll landsins...?

#9
andrz skrifaði:Ég skal viðurkenna það að ég hef ekki mikið álit á manni sem breytir dýrum og flóknum bílum og getur ekki einu sinni komið undir nafni.

En engu að síður þá getur vel verið að þessi maður kunni til verka á ákveðna bíla, skil samt ekki hvað einhver töffari á að geta gert betur,,, eða meir en þau fyrirtæki sem gefa sig frá A-Ö í þessa vinnu, með sína eigin verkfræðinga, tæknifræðinga og hvað þau starfsheiti heita nú öll sömul. Á nú bágt með að trúa því að Kleemann bíllinn sem um ræðir í þessum þræði hafi stútað mótor vegna mapi sem kemur frá því breytingafyrirtæki sem breytir bílnum, miðað við þann búnað sem í honum er.

Einnig liggur á mér sú forvitni um hvorn SL Carlsoninn þú ert að tala um, því ég veit það fyrir víst að annar þeirra tekur ekki feilpúst.
Ástæða þess er margþætt og skiljanleg. Þessi einstaklingur vinnur fyrir eða hefur unnið fyrir marga stæðstu bílaframleiðendur heims svo og fjöldann allan af breytingarfyrirtækjum og er það ástæða nafnleyndar. Honum er borgað fyrir þá vinnu eins og þú ættir að átta þig á og það því ekki vel séð að selja betrumbót til 3ja aðlila.

Þessi drengur hefur meðal annars unnið fyrir F1 Mc Laren, Nascar og mörg kappakstur lið víðs vegar um heiminn. Hann hannaði brunarými í Mc Laren F1 mótor er notaður var 2007-8. Hann hannaði hugbúnaðinn í nýja BMW X5/X6 M útgáfunni og vinnur mikið með M deild BMW. Hann vinnur einnig fyrir nokkra japanska framleiðendur.
Hann hjálpar til við þróun og prufun á ýmsu frá kappaksturtækjum til tvíorkuökutækja, setur upp og hannar fjöðrunnarkerfi jafn sem blásarakerfi á BMW mótora og margt fleira. Hann er ekki bara töffari eins og þú nefnir, hann er sprenglærður á bókina og hefur með sanni unnið fyrir sínu.

Hann selur mörgum aftermarket tjúnnurum "hugbúnaðaruppfærslur" á mótortölvur. Þegar menn efuðumst um að hann hefði hannað það bað hann þá að lesa vissar línur í kveikju og bensíntöflun og kom þá nafnið hann í ljós 8)

Þessi tiltekni bíll er þessi þráður var stofnaður er kraftmikil, því er ekki að neita. Mótorinn bræddi úr sér vegna mistaka hjá Kleemann. Þegar Hr X "mappaði" bílinn kom í ljós að búið var að aftengja "knock control" ( kveikjubanksvörn) sem er hættulegt í þetta tjúnnum bíl.Hr X breytti bílnum þannig að hann var ríkur en ekki magur á allri gjöf til að vernda mótorinn, hinsvegar þegar búið er að aftengja "knock control" þarf ekki annað en að taka 95 okt eldsneyti og voðin er vís eins sást best á þessum mótor.

Stundum er betra að þegja en segja !!!

kv Jóhann

Re: Öflugasti götuskráði bíll landsins...?

#10
Jóhann G skrifaði:

Ég skal ekki segja með þetta, ég flutti inn þennan bíl á sínum tíma, seldi hann svo til þanns sem lét mr.X mappa hann, sem og svo fór mótorinn hjá.

Mér skildist á tengilið mr. X að bíllinn hefði verið of ríkur frá kleemann þar af leiðandi ekki að skila nærri því afli sem var þarna til.
..... ef bílar eru of ríkir: minna afl,
.....lean: meira afl, en bíllinn má ekki vera "of " lean, segir sig sjálft. þess vegna er stuðst við AFR mælingar til að sjá hvað bíllinn er að gera í hvert sinn.

En ég skildi það þannig að hann hefði leanað hann, ásamt eflaust var fiktað eitthvað í kveikju, enda náðist meira afl út úr honu þá , finnanlegur munur..... :evil:
Allavegana fæst ekki meira afl útúr bíl , með því að gera hann ríkann.
Flestir bílar sem koma útúr verksmiðju, eru seldir frekar ríkir enn hitt, til að hafa þá save, þess vegna er oftast hægt að ná meira afi útúr orginal bílum með betra mapi.

En þessi bíll var alltaf keyrður á V-power þegar ég átti hann, enda var skýrt tekið fram frá kleemann lágmark 98 okt bensín yrði notað.
Ég veit að sá sem átti bíllinn þegar mótorinn fór, keyrði hann að öllu jafnaði á 98-99 okt, en í restina asnaðist hann til að keyra hann á 95 okt, algjört kæruleysi, veit til þess að stundum bætti hann einhverjum bætiefnum útí, sem er þvílíkt kjaftæði,!!!!

Mín skoðun á þessu er að, bíllinn hafi verið vel mapaður hjá mr.X, á( 99 + okt )en samt mun tæpari(leanri) heldur en hann var hjá kleemann. Þannig að ég vil meina að meðferðin á bílnum þ.a.s. hvernig hann var keyrður, bæði staðinn hálf kaldur og svo oft á 95 okt bensín í tíma og ótíma bæta einhverju sulli útí besínið, svo allt staðið flatt,
þetta held ég að hafi ráðið úrslitum mótorsins.
Þegar bíllinn var mapaðu af mr. X var hann á 99 okt Vpower, tel að helsti munurinn liggur þar, þetta er svo tjúnnað og tæpt, að standa þetta á 95,okt, þá er einfaldlega verið að leika sér að eldinum að mínu mati.

Ég held ekki að Kleemann séu vitleysingar, vilja bara hafa þetta save svo að þeir fái ekki svona mál upp á borð til sín, þegar bílarnir enda í höndunum á þeim sem ekki kunna rétt með að fara...

Bíllinn er geggjaður btw,

kv Bæzi
cron