Re: Fallegur Benz

#2
Flott safn!

Hans Werner Aufrecht og Erhard Melcher voru ekki einu sinni hugmynd þegar Karl Benz framleiddi þennan svo að það hefur ekki verði nein AMG útfærsla :lol:

Ansi mikið "spagettídót" þarna í safninu. Verð nú að viðurkennað SLinn heillar mig mest...
[img]http://www.sportscardigest.com/wp-conte ... ion-36.jpg[/img]
en ég hef heldur lítið vit á hinum bílunum svo að ég get nú varla mikið tjáð mig um þá :oops:
Benedikt Hans Rúnarsson

Re: Fallegur Benz

#4
Benni !
Ekki tala illa um
"Ansi mikið "spagettídót" þarna í safninu. Verð nú að viðurkennað SLinn heillar mig mest...
"
Mín skoðun er að "spagettikallarnir" á Ítalíu hafi nú haft heilmikil áhrif á alla bílaþróun, og þar er ég að tala út frá fagurfræðilegu tilliti, en einnig eru ítalarnir með afar skemtilega performance bíla. ;)

þó að þjóðverjinn sé nokkuð rúðustrikaður, að þá er ítalin skemtilega viltur í þessu. ;)

Ég á mínar taugar til ítalskra bíla þó ég eigi Benz ... ;)
M.Benz 300CE-24v - TT
Land Rover Discovery I 1997- Landbúnaðartækið...
TREK reiðhjól.... lítið notað
-----------------------------------
http://public.fotki.com/Skaddi/mercedes_Benz_300/" onclick="window.open(this.href);return false;
----------------------------------

Re: Fallegur Benz

#5
skaddi skrifaði:Benni !
Ekki tala illa um
"Ansi mikið "spagettídót" þarna í safninu. Verð nú að viðurkennað SLinn heillar mig mest...
"
Mín skoðun er að "spagettikallarnir" á Ítalíu hafi nú haft heilmikil áhrif á alla bílaþróun, og þar er ég að tala út frá fagurfræðilegu tilliti, en einnig eru ítalarnir með afar skemtilega performance bíla. ;)

þó að þjóðverjinn sé nokkuð rúðustrikaður, að þá er ítalin skemtilega viltur í þessu. ;)

Ég á mínar taugar til ítalskra bíla þó ég eigi Benz ... ;)
Mér finnst spagettí mjög gott, reyndar flest allur ítalskur matur góður og ansi oft á borðum heima hjá mér :wink:

Ítalskir bílar eru með þeim fallegri sem eru á markaðinum, Alfa Romeo t.d. þar sér á parti.
"Spagettídót" er bara minn samnefnari fyrir ítalska bíla, svona eins og "bílar úr Ameríkuhreppi" er fyrir bandaríska bíla (orðið heyrði ég fyrst hjá Doktornum og hef notað það síðan ;) ).
Þá á ég "Kóreuhreppsdót", þ.e. 2 x Hyundai 4x4 bíla :roll:

Frúin segir stundum að það ætti að fylgja með mér orðabók svo það menn geti áttað sig á því hvað ég sé að segja :lol:

Annað mál, það má ekki gleyma því að þeir hjá Benz hafa ekki alltaf haft þjóðverja sem aðalhönnuði. Frakkanum Paul Braq er t.d. sagður eiga útlitið á W111 Coupé og W100 og svo má ekki gleyma ítalanum Bruno Sacco (http://en.wikipedia.org/wiki/Bruno_Sacco" onclick="window.open(this.href);return false;) svo að "spagettídótið" frá Benz er líka alveg stórglæsilegt ;)
Benedikt Hans Rúnarsson