Þessi þráður hefur ekki verið "nýttur" lengi svo að ég ætla að bæta aðeins við....
Var að rúnta aðeins með fjölskyldunni um daginn í minni "sveit" og sá þá nokkra álitlega gamla Benza....
Hér er gamall 350SL sem leit helv... vel út, a.m.k. úr fjarska

[img]
http://dl.dropbox.com/u/1260886/Efni%20 ... all%29.JPG[/img]
Svo rak ég augun í bíl sem ég hafði séð nokkrum sinnum í umferðinni og langaði til þess að skoða nánar. Þar sem ég var að "paparazzast" kom eigandinn heim og ba uð mér að skoða gripina sína betur - kom í ljós að eigandinn er með "ólæknandi Benz dellu" sem "hrjáir" víst marga hérna á þessu spjalli
Þetta er C123 (W123 Coupé) sem er, ótrúlegt en satt, ekki ekinn nema 72.500 km og er merkileg saga að baki þessum bíl.
Fyrsta myndin er augljóst "paparazz" skot:
[img]
http://dl.dropbox.com/u/1260886/Efni%20 ... all%29.JPG[/img]
Þegar ég var búinn að taka þessa mynd sá ég að það var W116 í stæðinu innar við húsið og um leið og ég ætlaði nú að fara að "zooma" renndi A class bíll sér inn götuna og vildi klárlega komast í stæðið sitt hjá öldungunum

Ég snaraðist út, kynnti mig og bauð eigandinn mér þá að skoða gripina nánar.
Þessi C123 er 230 týpa (ekki E) og var áður í eigu eins af hönnuðum W123 hjá Mercedes-Benz. Hann lést um aldur fram og átti ekkja hans bílinn um einhvern tíma og hafði reynt að selja en þar sem hann var ekki með beinni innspýtingu þá seldist hann ekki. Núverandi eigandi keypti bílinn á staðnum á mjög hann á hagstæðu verði en þar sem hann gat ekki tekið hann með sér strax til Íslands þá geymdi ekkjan bílinn fyrir hann í u.þ.b. ár (ef ég man það rétt). Þegar hann svo sótti hann hafði ekkjan látið yfirfara hann sérstaklega - munur að eiga viðskipti við svona eðal fólk

[img]
http://dl.dropbox.com/u/1260886/Efni%20 ... all%29.JPG[/img]
[img]
http://dl.dropbox.com/u/1260886/Efni%20 ... all%29.JPG[/img]
Bíllinn hefur alltaf verið í geymslu að vetrarlagi en varð þó fyrir smá skemmdum í geymslunni þar sem hitaveitulögn sprakk og heitt vatn lak á hann. Það er þó ekkert sem ekki er hægt að bæta

[img]
http://dl.dropbox.com/u/1260886/Efni%20 ... all%29.JPG[/img]
72.471 km takk fyrir
[img]
http://dl.dropbox.com/u/1260886/Efni%20 ... all%29.JPG[/img]
Og þá er það W116 sem er klárlega með bestu eintökum sem af þesari gerð hérna á klakanum (hef sjálfur ekki séð neinn betur með farinn):
[img]
http://dl.dropbox.com/u/1260886/Efni%20 ... all%29.JPG[/img]
[img]
http://dl.dropbox.com/u/1260886/Efni%20 ... all%29.JPG[/img]
Hér sést glitta í eigandann í bakgrunni (úr fókus þó)...
[img]
http://dl.dropbox.com/u/1260886/Efni%20 ... all%29.JPG[/img]
Frúarbíllinn, A class A170 CDI sjálfskiptur í bakgrunni - eru mjög ánægð með bílinn (algjör sparibaukur en samt mjög sprækur

)
[img]
http://dl.dropbox.com/u/1260886/Efni%20 ... all%29.JPG[/img]
[img]
http://dl.dropbox.com/u/1260886/Efni%20 ... all%29.JPG[/img]
Og keyrslan, aðeins rétt tilkeyrður eða 130.515 km
[img]
http://dl.dropbox.com/u/1260886/Efni%20 ... all%29.JPG[/img]
Mig minnir að báðir bílarnir séu árgerð 1979.