Síða 4 af 6

Innsent: 10 Okt 2003, 18:33
frá Benzboy
Það er alveg rétt og það er heldur aldrei of mikið af góðum Benz eða hvað?

Innsent: 13 Okt 2003, 22:25
frá Mercedes-Benz
Benzboy skrifaði:Það er alveg rétt og það er heldur aldrei of mikið af góðum Benz eða hvað?
Nei það verður aldrei til of mikið af Benz. Hvorki í eintölu eða fleirtölu.

Innsent: 15 Feb 2004, 10:53
frá E 220T
Annars heiti ég Hálfdan og ég held að ég sé Benz sjúkur. Spurning hvort læknirinn eigi eitthvað við þessu?

Var t.d. að selja aukabíl heimilisins A-160 og panta mér E420 frá Þýskalandi sem aukabíl Það eru nú kannski ekki mikil skynsemisrök sem liggja þar að baki. Hlýtur að vera einhver Benz veira komin í blóð mitt

Er strax farinn að velta fyrir mér næsta Benz Beggi, áttu eitthvað við þessu?

Innsent: 15 Feb 2004, 16:15
frá Benzboy
E 220T skrifaði:Annars heiti ég Hálfdan og ég held að ég sé Benz sjúkur. Spurning hvort læknirinn eigi eitthvað við þessu?

Var t.d. að selja aukabíl heimilisins A-160 og panta mér E420 frá Þýskalandi sem aukabíl Það eru nú kannski ekki mikil skynsemisrök sem liggja þar að baki. Hlýtur að vera einhver Benz veira komin í blóð mitt

Er strax farinn að velta fyrir mér næsta Benz Beggi, áttu eitthvað við þessu?
Sæll Halli, ég var einmitt búinn að vera að velta fyrir mér bílasögunni hjá þér og svo þegar Gunna sagði mér að þú værir að fara að fá einn frá Mekka var ég orðinn svona 99% viss um hver þessi E 220T væri. Hvað varðar lækningu á þessum "kvilla" er þetta allt einn stór misskilningur þ.e.a.s. það eru hinir sem þurfa eitthvað við þessu

Innsent: 15 Feb 2004, 17:36
frá E 220T
Hvað varðar lækningu á þessum "kvilla" er þetta allt einn stór misskilningur þ.e.a.s. það eru hinir sem þurfa eitthvað við þessu [/quote]


Já, þú meinar það. Ég var að vona að þú gætir gefið mér eitthvað við þessu um næstu helgi. Þú færð þá bara eitthvað fljótandi hjá mér í staðinn, svipað á litinn og epladjús.

Innsent: 15 Feb 2004, 18:46
frá Benzboy
E 220T skrifaði:...um næstu helgi...svipað á litinn og epladjús.
Þetta hljómar vel (Gunna var búinn að minnast á þetta við mig og aldrei þessu vant er ég ekki að vinna). Hvenær er annars von á V8 heim?

Innsent: 15 Feb 2004, 20:00
frá E 220T
Skipið kemur á þriðjudag. Næ honum vonandi út fyrir helgi
Eigum við að fá okkur epladjús á föstudag?
Spurning hvort það verði fyrir eða eftir reynsluakstur

Innsent: 15 Feb 2004, 21:21
frá Benzboy
Ætli það sé ekki mun heppilegra að gera það EFTIR reynsluakstur, allavega ef þetta verður svona "gerjaður" eplasafi

Góður sjúkdómur

Innsent: 16 Feb 2004, 01:34
frá Þröstur
Sælir ég heiti Þröstur og er með Benz veiki á slæmu stigi. Það hjálpar ekki til að atvinnubíllinn er E220 CDI 2001 nánar merktur sem BSR 70 þessi bíll er í einu orði sagt frábær.

Innsent: 28 Des 2005, 23:49
frá gmg
Er ekki rétt að endurvekja þennan þráð ?? :mercedes: