#6
Strákar, hvernig væri að sýna meiri tillitsemi þegar menn bera sálartetrið og koma svona út úr skápnum.

Ehem!

Ég heiti Sveinn og ég er Benzsjúklingur.
Seinast breytt af sveinn þann 29 Sep 2003, 15:16, breytt 1 sinni alls.
Sveinn

#8
Ég á við dálítið vandamál að stríða (enda Benzsjúklingur), því ég geng nefnilega með það í maganum að kaupa þetta drasl;

[img]http://www.fornbill.is/benz/images/Heck ... sse10b.JPG[/img]

Ég hef að sjálfsögðu ekkert við bílinn að gera, því ég á nú þegar tvo Benza. Ég hef engan stað til að geyma bíllinn sem er hálf ónýtur. Ég veit þetta allt, en samt er ég að hugsa um að kaup hann. Ég geng með þá hugmynd að framkvæma á honum annars flokks uppgerð og nota hann dags daglega. Og hvar á ég að geyma 6.3 þegar ég vinn í druslunni? Og hvað á ég þá að gera við gráa Benzann þegar þessi verður tilbúinn? Ég tími náttúrulega ekki að selja hann, því þetta er besti bíll sem ég hef átt. Síðan sel ég náttúrulega aldrei 6.3, aldrei!

Eru blásýrutöflurnar hans Rúnars eina leiðin út úr þessu?

P.s. hugsið ykkur vitleysuna; nota gamlan 6cyl hekkara sem brúksbíl. Eyðir örugglega rétt tæplega 20L á hundraðið hér innanbæjar og kramið er 40 ára. Þetta er ljóta ruglið, maður.
Sveinn

#10
Já, þetta er má segja eina tískuhliðarspor sem Benz hefur gengist undir. Það sem er einu sinni í tísku verður eitthvað svo innilega púkalegt seinna. Maður sér alveg fyrir sér kerlingarnar í stuttum pilsum með kattargleraugu og slæðu í hárinu stíga út úr þessum bíl.
Sveinn
cron