#11
Svo að ég svari þér Örn, f.h. stjórnar Mercedes-Benz klúbbs Íslands, þá eru menn auðvitað með misjafna kímnigáfu.
Það sem þér t.d. finnst vera fyndið getur öðrum fundist vera dónaskapur.
Svona er það bara.

Við getum sjálfsagt flest hlegið að ýmsum hlutum sem við myndum aldrei detta í hug að birta hérna inni. Sumt annað sem okkur finnst ekkert fyndið en skoðum samt myndi okkur heldur ekki detta í hug að birta hérna.

Ástæðan er einföld:
Ekkert aldurstakmark er á spjallinu okkar enda var hugsunin að allir þeir sem hafa áhuga á Mercedes-Benz, karlar eða konur, gætu tekið þátt í því eða lesið það sem fer hér fram án tillits til aldurs, kyns eða skoðana.
Það er m.a. þess vegna sem við erum með þessar tiltölulega einföldu reglur sem menn samþykkja að fara eftir um leið og þeir setja inn innlegg hér á spjallið.
adler skrifaði:Er stefnan að hér verði bara já menn að tjá sig algjörlega litlausir og flatir og án allra persónulegra einkenna ?
Við getum nú ekki séð að menn séu hérna á persónulega einkenna.
Ef þú skoðar spjallið og sérð innlegg manna þá eru þau eins misjöfn og spjallverjarnir eru margir.

Okkur hefur t.d. að jafnaði fundist þín innlegg fróðleg og skemmtileg enda ert þú augljóslega fróður um bíla og er mikill akkur fyrir spjall eins og okkar að hafa kunnáttumenn eins og þig meðal spjallverja.
Það hafa þó komið upp atriði sem samræmast ekki reglum spjallsins og hafa þau verið fjarlægð eins og þú veist vel.
Flestir þeir sem við höfum bent á að innlegg séu ekki í lagi hafa sætt sig við það og haldið áfram að setja inn innlegg eftir það án nokkurra vandkvæða af okkar hálfu.

Það hafa komið upp dæmi þess að menn hafi bent á einstaka hluti sem þeir telja að séu andstæðir reglum þessa spjalls. Dæmi um það er innlegg sem þú bentir okkur á þar sem fjallað var um eigendur BMW bifreiða. Þegar ég las það þá fannst mér þetta vera dæmigert "sandkassagrín" sem menn færu varla að taka alvarlega ("aulahúmor" / "sandkassaleikur" sem maður sér stundum á öðrum sambærilegum þráðum) en þar sem þetta fór augljóslega fyrir brjóstið á þér, og þá hugsanlega öðrum, þá var það fjarlægt enda einfalt að sjá að það hafi verið andstætt reglum spjallsins. Ef við hefðum tekið eftir innlegginu fyrr þá hefði það sjálfsagt ekki fengið að standa svona lengi. Í framhaldinu af þessu, sem og öðru máli sem kom upp, var ákveðið að fá fleiri aðila með okkur í spjallumsjónina.
Hvernig endar þetta ? verður kanski reist Benz kirkja í utanum söfnuðinn þar sem menn tilbiðja merkið og tegundina.
Þó það séu einstaklingar hérna sem e.t.v. tilbiðji Benz þá er það a.m.k. ekki á okkar stefnu að stofna kirkju utan um "söfnuðinn" né stuðla að því að neinu leyti :lol:
Við höfum ekki neitað umræðu um aðrar tegundir hérna, a.m.k. ekki svo að mig minni til um. Þú leiðréttir mig bara ef ég hef rangt fyrir mér.
En hitt er að mönnum er alveg frjálst að stofna söfnuð utan um það sem þeim dettur í hug svo fremi sem að það sé ekki andstætt lögum landsins :wink:
Þetta er hættuleg þróun hjá ykkur að mínu mati sem gæti hæglega farið illa. Samanber Hilla gamla þegar að hann ákvað að hvíti kynstofnin væri æðri öðrum kynstofnum þá er eins verið að hreinsa til hér eins og hann varð svo frægur fyrir á þessu spjalli með því ákveða að þeir sem eru ekki á sömulínu og stjórnendur klúbbsins t.d varðandi húmor og skoðanir eru sjáfkrafa orðnir óæskilegir og óhæfir til að taka þátt í já kórnum þar sem allir eru stilltir og án allra persónulegra skoðana.
II. Innlegg
2. Menn skulu leitast við að gæta orðalags og sýna háttvísi í innleggjum sínum á spjallinu. Allt móðgandi, særandi, dónalegt, hatursfullt og kynferðislegt tal, vísvitandi lygar, hótanir eða annað háttalag sem varðað getur við lög er óleyfilegt hér á spjallinu.
Eflaust má túlka eitthvað í þessum texta mínum sem særandi, dónalegt og eða jafnvel hatursfullt.
Þú mátt alveg hafa þínar skoðanir og þetta innlegg er ekkert sem við gerum athugasemdir við heldur fögnum við umræðunni. Reikna alveg eins með því að einhverjir hafi hugsað svipað og þú en hugsanlega ekki treyst sér til þess að stofna umræðu um það.
Málefnaleg umræða er eitthvað sem við sækjumst eftir þó svo að ég sjái nú ekki samnefni við okkur og Hilla gamla (reikna með að þú eigir við "Dolla gasalega", einnig þekktur undir nafninu Adolf Hitler) enda var hann mikill rasisti, stórglæpamaður og fjöldamorðingi og hvatti til "hluta" sem við viljum alls ekki hafa á okkar spjalli.
Held að það sé ákaflega fátt sem við eigum sameiginlegt með Hilla / Dolla nema e.t.v. sameiginlegur áhugi á Mercedes-Benz :roll: en reyndar hefur það loðið við marga einræðisherra og aðra brjálæðinga að þeir hafi haft áhuga á góðum bílum :?
Get ég nefnt Idi Amin og Saddam Hussein sem dæmi.

Sú "ritskoðun" sem við höfum þurft að sinna hefur verið tiltölulega einföld og eru reglurnar hafðar í huga.
I. Tilgangur
1. Spjall þetta er tileinkað umræðum um Mercedes-Benz bifreiðar og er hugsað sem vettvangur fyrir umræður áhugamanna því tengdu. Tilgangur spjallsins er að auka og auðvelda samskipti manna með sama áhugamál og er hugsað til jákvæðra samskipta þeirra á milli er varða áhugamálið.
Jákvæð samskipti er það sem við klárlega leitum eftir!
II. Innlegg
3. Pirringur út í einstaklinga og/eða fyrirtæki og ágreiningur þeirra á milli er ekki vettvangur þessa spjalls. Mælst er til þess að menn leysi sín ágreiningsmál annarstaðar.
Í þeim tilfellum sem menn hafa verið að skjóta hver á annan þá höfum við stoppað það.
Ástæðan er sú að svoleiðis hlutir koma okkur ekki við og eiga menn að leysa sín persónulegu ágreiningsmál annarsstaðar en ekki fyrir opnum tjöldum á okkar spjallsvæði. Við berum ábyrgð á þessu spjalli og verða menn að hafa það í huga.
Telji menn sig vera hlunnfarna að einhverju leyti hvað varðar svona mál þá er einfalt mál að hafa samband við stjórnarliða (við allir skráðir undir nafni og með uppgefin símanúmer) eða uppgefna spjallumsjónarmenn og við munum tækla málið eins hratt og hægt er.

Að undanförnum mánuðum hefur það verið að gerast að upp hafa komið nokkur mál sem við höfum þurft að taka á mjög hratt og höfum við því fengið 3 aðila til liðs við okkur til þess að aðstoða okkur við að halda spjallinu í þeim farvegi sem til var ætlast. Stjórnarmeðlimir geta ekki verið hérna 24/7 til þess að fylgjast með því að menn séu að fara eftir reglunum. Það er því mikill hagur fyrir okkur að hafa aðila sem við treystum fullkomlega til þess að aðstoða okkur, sem og aðra spjallverja, ef eitthvað kemur upp á.

Sumir einstaklingar hafa fengið fleiri ábendingar frá okkur en aðrir án þess að það hafi haft þau áhrif að þeir hafi hætt á spjallinu eða í klúbbnum sjálfum (ekki er skylda að vera aðili í klúbbnum til þess að taka þátt í spjallinu). Þeir taka áfram þátt í umræðunni og fylgja eftir reglunum en n.b. hafa áfram fulla heimild til þess að hafa skoðanir á hlutunum.
Þegar við teljum að menn hafi farið yfir strikið þá fá þeir "gula spjaldið" og látum við þá vita. Ef menn fara ítrekað yfir strikið (fengið fleiri en 1 ábendingu) þá fá þeir "rauða spjaldið" og eru lokaðir frá spjallinu í viku. Það er þó ákaflega sjaldgæft að það gerist.
Þó eru til tilfelli þar sem við höfum neyðst til þess að loka á ákveðnar IP tölur en það er þó sárasjaldgæft og að mínu viti átt eingöngu við aðila sem ekki voru skráðir inn á spjallið (gestir) með rætnar árásir á einstaklinga á spjallinu.

Við hvetjum alla til þess að vera með nafn sitt í undirskrift. Ástæðan er m.a. sú sem þú tilgreindir (og settir þitt nafn við innleggið :wink: )
III. Notendanafn og undirskrift
2. Kjósi menn að taka hlutdregna afstöðu og koma á framfæri ákveðnum meiningum varðandi einstaklinga og/eða fyrirtæki, skulu þeir hafa nafn sitt í undirskrift, ellegar skulu þeir hafa yfirlýsingar sínar fyrir sjálfa sig.
Þessi regla hér að ofan og eftirfarandi regla
II. Innlegg
3. Pirringur út í einstaklinga og/eða fyrirtæki og ágreiningur þeirra á milli er ekki vettvangur þessa spjalls. Mælst er til þess að menn leysi sín ágreiningsmál annarstaðar.
stangast þó pínulítið hvor á aðra en þó höfum við t.d. ekki tekið út umræður t.d. um þjónustuaðilann þar sem menn komu undir nafni. Þar má segja að sú umræða hafi átt fullkomlega rétt á sér þar sem aðilar komu undir nafni og hvar annarsstaðar ætti þessi umræða að fara fram nema á spjalli tengdu Mercedes-Benz?
Ef menn eru hins vegar með meiningar um aðila/fyrirtæki og koma ekki undir nafni þá mega sömu aðilar eiga von á því að innleggið verði fjarlægt og þeir fái í framhaldinu ábendingu þar að lútandi.

Ef menn eru ósáttir við reglurnar, finnst að eitthvað mætti betur fara eða hafa tillögur að breytingum þá erum við mjög svo áhugasamir um að fá ábendingar þar að lútandi.
Það er t.d. hægt með því að stofna þráð þar um, senda okkur einkapósta eða senda tölvupóst á vefstjorn ( @ ) stjarna.is.

Skv. tölulegum upplýsingum hefur spjallþráðurinn okkar, sem og heimasíðan www.stjarna.is, fengið fleiri heimsóknir að undanförnu og eru fleiri aðilar að skrá sig inn og taka þátt í umræðunni.
Það hlýtur að segja okkur að við séum a.m.k. að gera eitthvað rétt ;)
Seinast breytt af Benni þann 29 Jan 2009, 12:47, breytt 2 sinnum alls.


Benedikt Hans Rúnarsson

#12
Hmm.. ok, sé að meðan ég var að svara innlegginu þá voru bæði Halldór Björn og Jón Birgir búnir að svara líka - en við látum þetta bara allt standa - engin "ritskoðun" á þessu ;)
Benedikt Hans Rúnarsson

Re: Benz spjall

#13
Björgvin B skrifaði:En hvað með " Hilla gamla" er það í lagi ! :wink:
Samlíking við "Hilla gamla" er e.t.v. fullsterkt til orða tekið en við látum það standa í þágu umræðunnar sem er af hinu góða :wink:
Benedikt Hans Rúnarsson

#14
Adler ég skil ekki þetta væl í þér.


Og það að þú einn hafir svona miklar áhyggjur af þessu segir kannski meira um þinn "stíl" hérna inni á stjarna.is heldur en stjórnendur stjarna.is


:?
Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin

#15
Hilli var nú kanslari Þýskalands og ætti því alveg að fá að vera með í umræðunni :P
Mercedes Benz W123 230E árg. 1982 -húsbóndabíllinn-
Toyota Land cruiser 120 VX -frúarbíllinn-
Honda CB600 -leikfangið-
-Brynjar Sigmundsson-
atligu skrifaði: ...veifað til nágrannans á sínum Toyota Yaris sem kæmist í hólfið milli framsætanna hjá þér!!!

#16
Ásgeir Yngvi skrifaði:Adler ég skil ekki þetta væl í þér.


Og það að þú einn hafir svona miklar áhyggjur af þessu segir kannski meira um þinn "stíl" hérna inni á stjarna.is heldur en stjórnendur stjarna.is


:?
Þetta er nú frekar særandi orð í minn garð :)

En er ekki allt í lagi að fá fram hvaða hugsun eða huglægt mat er á bak við ritskoðun spjallsins og hvar mörkin liggja og hversu langt má fara inná gráa svæðið. ?
það ágætt að hafa nokkrar lausar skrúfur.
Á einn Benz >124-220E-1993<
Sælir eru fattlausir , því þeir fatta ekki hvað þeir eru vitlausir.
[img]http://www.killbillet.com/images/smilie ... s04247.gif[/img]

#17
jæja nú getur maður bullað einhverju vitleysu,allir sofandi :D ,nei bara djók,enn alltaf gott ef fylgst er með,enn meigum ekki fá stóra bróður fílinginn hér af netlöggunum,finnst að báðir aðilar meigi kunna sitt hóf,spjallverjar og stjórnendur
kv Gummi
MERCEDEZ S 500 ÁRG 94
MERCEDES 230 E COUPE ÁRG 90 í uppgerð
RENAULT KANGOO ÁRG 2011/SVARTUR

GET ALDREI Keyrt eins og Rafynjan
ÞARF Mikið TIL!!!!!
SVONA TVO

#18
Ásgeir Yngvi skrifaði:Adler ég skil ekki þetta væl í þér.


Og það að þú einn hafir svona miklar áhyggjur af þessu segir kannski meira um þinn "stíl" hérna inni á stjarna.is heldur en stjórnendur stjarna.is


:?
Sammála. Adler hættu að spá í þessu. Held að þessi ritstýring sé hugsuð til að hafa smá bremsu ef einhver missir sig í dónaskap eða klúryrðum sem eru sögð í hita leiksins. Nenni að öðru leiti ekki að lesa allan þennan þráð en held að þeir sem séu að misskilja þetta halda að núna förum við eitthvað að skrifa halelúja um allt og alla. Hef engar áhyggjur af þessu og finnst bara gott að það séu virkir stjórnendur og þeir fáist til að taka það að sér. Gangi ykkur vel!
__________________________
VW Bjalla 1963
M.Benz 280SE 1971
VW Microbus 1975
M.Benz 450SEL 1975
VW Caravelle VR6 1999
Alfa Romeo 156 1999
BMW 320 1999


VW Bjalla 1963