CLK W202?

#1
Ég var á leiðinni heim úr sporthúsinu í fyrradag þegar ég rekst á W202 með stafina CLK, að mig minnir 230 kompressor eða 320 eða eitthvað, silfurlitaður bíll, fór ekkert á milli mála að þetta var bara ósköp venjulegur W202, bara nákvæmlega eins og minn, meira að segja sami litur.

Hefur einhver séð þennan bíl og veit einhver af hverju í ósköpunum hann er merktur svona?

Fattaði bara ekki að taka mynd :roll:


C180 '99 W202

#3
Hann hefur örugglega ekki hugmynd um að CLK er bara 2ja dyra bíll. :lol:
Reynir Ari Þórsson
848-8699

W124 - Mercedes Benz E 420
W124 - Mercedes Benz 300 Diesel

#4
Haha satt, en ég meina... hvar fékk hann stafina? varla er hægt að kaupa þá sem varahluti bara? eða hvað? :roll:
C180 '99 W202

#5
Júlli skrifaði:Haha satt, en ég meina... hvar fékk hann stafina? varla er hægt að kaupa þá sem varahluti bara? eða hvað? :roll:

við skulum nú reikna með að það sé hægt að kaupa þessa stafi eins og allt annað í þessa bíla ;)
Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin

#7
HAMAR skrifaði:Það er meira töff að eiga CLK en bara C :lol:
Uuuu nei. CLK er ekki neitt augnkonfekt sko.
Andri Hrafn
---



Mercedes Benz E220 W124 1995
Subaru Forrester 2005,
Yamaha WR 450 F 2004

#8
Ásgeir Yngvi skrifaði:
Júlli skrifaði:Haha satt, en ég meina... hvar fékk hann stafina? varla er hægt að kaupa þá sem varahluti bara? eða hvað? :roll:

við skulum nú reikna með að það sé hægt að kaupa þessa stafi eins og allt annað í þessa bíla ;)
Já það hlýtur nú reyndar að vera hægt að fá nýja fyrir bílinn sinn, en ég meina... get ég farið uppí öskju og keypt mér "C36 ///AMG" og sett aftan á bílinn minn?
C180 '99 W202

#9
Já, það held ég alveg örugglega, en þeir eiga það sennilega ekki til á lager :wink:
Sigurður HAMAR Pétursson 897-5576
Mercedes Benz 300E 4Matic '89
BMW 225xe

#10
Júlli skrifaði:
Ásgeir Yngvi skrifaði:
Júlli skrifaði:Haha satt, en ég meina... hvar fékk hann stafina? varla er hægt að kaupa þá sem varahluti bara? eða hvað? :roll:

við skulum nú reikna með að það sé hægt að kaupa þessa stafi eins og allt annað í þessa bíla ;)
Já það hlýtur nú reyndar að vera hægt að fá nýja fyrir bílinn sinn, en ég meina... get ég farið uppí öskju og keypt mér "C36 ///AMG" og sett aftan á bílinn minn?
Þið eruð að djóka með þennan þráð er það ekki?????

Þú ferð á ebay og finnur C36 AMG merki pantar það og límir á bílinn ef þú vilt eða ferð í Öskju og pantar þetta og setur á bílinn.... en þú færð engin 100 og eitthvað hestöfl við það og bíllinn verður alltaf bara C180 bíll ;)
Björgvin Pétursson
280 SEL W126
E420 W124
230CE W123
230C W123
S320 W140
190E 2.6 W201
C36 AMG W202
C320 Brabus W203
E320 W124
230CE W124

http://www.cardomain.com/ride/3891358/1 ... nz-e-class" onclick="window.open(this.href);return false;
cron