#2
Er með 3 bíla á númerum, tryggingu á mig og eitthvað fl... fæ því afslátt

Man ekki nákvæmlega hvað ég er að borga fyrir bílinn sem er í kaskó... eitthvað um 80.00kr.

Sjóvá.


En nú bý ég í Borgarfirðinum og eitthvað rámar mig í það að ég fæ lægri tryggingar en þeir sem búa á höfðuborgarsvæðinu... eitthvað áhættumat.


Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin

#3
Ef þú ert með íbúð í þinni eigu að auki við Benzinn og hjólið. Þá ættirðu að geta fengið ágætis pakkatilboð þar sem við bættist innbústrygging.

Ef þú ert félagi í FÍB, hvar árgjaldið er 4800 krónur, þá bíður Vörður tryggingar hf upp á hagstæðar tryggingar til félagsmanna.
Jón Birgir Valsson
GSM:6990019

#4
Þetta er svolítið breytilegt eftir aldri og áhættu mati svokölluðu hjá þessum blessuðu félögum. Sjálfur er ég með "pakka", það er heimilis, líft, sjúkdóma , verkfæra, ferða og 3 bíla á tryggingu og þá einn þeirra í kaskó, þannig auðvelt er í þeirri stöðu að semja um "hagstæðan pakka".

Svo það væri í raun ósanngjarnt að veiða út úr þeim pakka gjald sem greitt er fyrir einn bíl.

..þá gæti ég sagt um 20 kall, en er það ekki fornbílatryggingin? ..en til að fá hana þarf maður að hafa annan bíl tryggðan einnig hjá sama aðila :wink:

Ef þú ert með bílalán þá ertu skyldugur að hafa bílinn í kaskó og það hækkar að sjálfsögðu iðgjaldið.
Delorean 1981_______________Swift 1992 Cabrio
[img]http://myndir.5aur.net/gallery2/d/39785-2/dmc.jpg[/img][img]http://myndir.5aur.net/gallery2/d/13305 ... Dsmall.jpg[/img][img]http://myndir.5aur.net/gallery2/d/36714 ... 3small.jpg[/img]
______________Benz 300D 1977______________
Stefán Örn Stefánsson - 869-6852 - ztebbi@simnet.is

#5
Elísabet er víst að koma ágætlega út í samanburði við önnur tryggingafélög fyrir ungt fólk sem er ekki búið að fjárgfesta í húsnæði. Hef ég heyrt. :?
Jón Birgir Valsson
GSM:6990019

#7
ég borga 40,000 til 45,000 á ári fyrir almenna tryggingu á bíl en 15,000 til 20,000 af fornbílum sem eru á fornbílatryggingu.
W126 500se 85'
Ford Mustang GT 01'
Ford Econoline 79'
John Deere Model M 49'
John Deere Model M 50'
MF 135

Hjalti Þórhallsson

#8
JBV skrifaði:Ef þú ert með íbúð í þinni eigu að auki við Benzinn og hjólið. Þá ættirðu að geta fengið ágætis pakkatilboð þar sem við bættist innbústrygging.

Ef þú ert félagi í FÍB, hvar árgjaldið er 4800 krónur, þá bíður Vörður tryggingar hf upp á hagstæðar tryggingar til félagsmanna.
Er maður eithtvað að græða á þvi að skrá sig í FÍB og fá afslátt á tryggingum hjá verði?
Halldór Björn Audi 1.8T Quattro Turbo
Mercedes Benz C36 ///AMG - Seldur
Olbogi skrifaði:
valdi skrifaði:þú þyrftir að finna þér nýtt grill.... það er farið að ryðga smá grillið í honum hjá þér :wink:
og afhverju stendur hann uppá bílasölu???
ef égætti svona þá fengi þetta aldrei að kólna... :mrgreen:
ef þú ættir svona væri hann bilaður
http://www.thunderbird.is" onclick="window.open(this.href);return false;

#9
Halldór Björn skrifaði:
JBV skrifaði:Ef þú ert með íbúð í þinni eigu að auki við Benzinn og hjólið. Þá ættirðu að geta fengið ágætis pakkatilboð þar sem við bættist innbústrygging.

Ef þú ert félagi í FÍB, hvar árgjaldið er 4800 krónur, þá bíður Vörður tryggingar hf upp á hagstæðar tryggingar til félagsmanna.
Er maður eithtvað að græða á þvi að skrá sig í FÍB og fá afslátt á tryggingum hjá verði?
Það er mín reynsla já. Svo um munar.
Jón Birgir Valsson
GSM:6990019

#10
Er með tvo bíla og mótorhjól í tryggingu hjá TM. W124 Benzinn og Mótorhjólið er í kaskó en hinn benzinn er bara á skildutryggingum. Er að borga um 18 þúsund kall á mánuði. Hækkaði sjálfsábyrgðina á kaskóinu á hjólinu til að lækka iðgjöldin því það má ekki taka kaskótrygginguna af þegar það hvílir lán á hjólinu. Þetta er þannig um 200 kall á ári hjá mér allt í allt, svo bætist við lánið á hjólinu sem eru engnir milljarðar :lol:
Andri Hrafn
---



Mercedes Benz E220 W124 1995
Subaru Forrester 2005,
Yamaha WR 450 F 2004