ivar skrifaði:
athugaði þú sem spurðir að það er mjög vitlaust að spurja á stjarna.is um kosti og galla benz, þú færð bara lituð svör,
Ívar minn, hvar ætti hann annars að spyrja, á Kraftinum?? Fengi hann nokkuð annað en lituð svör þar líka?
Held að þetta sé besti grundvöllurinn til þess að spyrja að svona lögðu enda ættu menn að hafa einhverja vitneskju um Benz hérna, ekki satt?
Hins vegar getur kannski verið færra um svör en ella þar sem margir eru væntanlega í sumarfríi...
Get reyndar annars ekki séð en að það hafi komið fram ágætar upplýsingar fyrir viðkomandi um hvað ber að varast eða hafa augun opin fyrir ákveðnum vandamálum með ákveðnar gerðir.
Þetta er nákvæmlega samskonar upplýsingar og ég hef fengið hér á spjallinu sem og annarsstaðar, að maður verði að skoða ákveðnar gerðir með möguleg vandamál í huga.
Að mínu mati eru bílar af gerðinni Mercedes Benz ekki það mikið frábrugðnir öðrum bílum að þeir líka bila, ryðga, innrétting gefur sig o.s.frv. Það vill þó þannig til að oftar en ekki þá endist vél, skipting og kram lengur í Benz en í öðrum bílum (sem er þó ekki algilt frekar en annað í heiminum).
Það sem mér finnst þó persónulega skemmtilegra við Benz en marga aðra er hvað það er ansi gott að keyra þá, jafnvel þó svo að þeir séu orðnir hundgamlir og slitnir
Ég legg það til við VF að fá ástandsskoðun (eða söluskoðun) á þennan bíl.
Ef þér líst vel á gripinn þá er ekkert að því að láta skoða hann og kaupa ef þér líst það vel á hann og verðið er ásættanlegt.
Ef upp koma vandamál þá getur þú ávallt sent inn fyrirspurn í tæknihorninu og oftar en ekki koma menn með með tillögur að úrbótum till að hjálpa manni
