Síða 4 af 6

Innsent: 01 Maí 2008, 11:52
frá Hlynzi
HAMAR skrifaði:Ég var einmitt að þrífa ljós ''leður'' sæti í gamla taxanum mínum
og ég notaði Interior Shampoo frá Autoglym, virkaði mjög vel.

[img]http://www.autoglym.com/enGB/includes/g ... Is_500.jpg[/img]

Svo er líka til sérstakur leður hreinsir frá þeim.

[img]http://www.autoglym.com/enGB/includes/g ... Lc_500.jpg[/img]
Hef akkúrat verið að pæla hvað ég get notað til að þrífa leðrið almennilega. Það er þetta ljósgráa í bláa bílnum.
Var að spá í dót sem heitir Lexol, er það til hérna heima ?
Eða er bara málið að mæta uppí Besta og finna eitthvað alvöru stöff.

(vildi að þetta væri svart, ekkert svona lagað vesen á því)

Innsent: 01 Maí 2008, 11:59
frá HAMAR
Askja og Tækniþjónusta Bifreiða eru að selja original
Mercedes Benz leðurhreinsir, spurning að tékka á því.
Annars eru Autoglym vörurnar bara nokkuð góðar.

Innsent: 01 Maí 2008, 12:42
frá Halldór Björn
Mercedes-Benz skrifaði:
Júlli skrifaði:......... það getur nú ekki verið svona hár tollur á þessu. ...
Það er 10% tollur af bóni, fægiefnum og sápum ef ég skil tollaskránna rétt. Ég er nefnilega svolitið að skoða svona bónmál í augnablikinu. :roll:

Hvaða bónvörur ertu að skoða?(hvaða framleiðanda) og er þetta ekki miklu ódyrara uti en herna heima

Innsent: 02 Maí 2008, 09:35
frá Mercedes-Benz
Halldór Björn skrifaði:Hvaða bónvörur ertu að skoða?(hvaða framleiðanda) og er þetta ekki miklu ódyrara uti en herna heima
Ég er að skoða þýskt bílabón sem er alger snilld. Fer ekki nánar út í það í bili hvað þetta er en ég verð hugsanlega með kynningu á því síðar hvað ég er að skoða.

Innsent: 02 Maí 2008, 16:06
frá Baddi
Taxi skrifaði:Jæja, það eru allir með sínar skoðanir á þrifum :)
Þar sem ég er með atvinnutæki þarf ég að bóna á svona 2 vikna fresti, sumar sem vetur, ég nota Sonax Hard Wax þar sem það er þægilegt og fljótlegt í notkum og hreinsar vel tjöru og flugur, á framrúðu (eingöngu) að innan nota ég Autoglym car glass polish, og allar aðrar rúður að innan, filmaðar eða ekki, nota ég Fast Glass frá Autoglym, svo á ég hérna smá trikk fyrir þá sem nota sonax, ég nota tvistinn eða klútinn sem ég notaði til að þurrka bónið af bílnum til að hreinsa allar rúður að utan, þetta skilur eftir örþunna bónhimnu á rúðunum svo vatnið perlar vel af, en ef þarf að nota rúðuþurrkur þá eru þær svo fljótar í gegnum himnuna að framrúðan verður ekki svona eins og fitug eins og gerist með rain-x þegar það fer að eyðast ! Ég kann samt ekki allt í sambandi við þrif og væri til í að fá góð ráð til að hreinsa ljós leðursæti, hvaða efni mæla menn með til þess ?

Gleðilegan verkalýðsdag,
Taxi
Ég notaði leather cleaner frá Mothers og það svínvirkaði. Og virkar enn betur ef notðaur er mjúkur bursti, svipað og tannbursti.

Innsent: 02 Maí 2008, 23:46
frá gmg
Mercedes-Benz skrifaði:
Halldór Björn skrifaði:Hvaða bónvörur ertu að skoða?(hvaða framleiðanda) og er þetta ekki miklu ódyrara uti en herna heima
Ég er að skoða þýskt bílabón sem er alger snilld. Fer ekki nánar út í það í bili hvað þetta er en ég verð hugsanlega með kynningu á því síðar hvað ég er að skoða.
Ég fékk að prófa þetta þýska bón hjá Rúnari á R-71, og það er snilld.

Auðvelt að vinna það, svo er bara að sjá endinguna á því !

Innsent: 03 Maí 2008, 03:03
frá Taxi
Hehe, þetta er bara gamla góða, hverjum þykir sinn fugl fegurstur :)

Búinn að lesa um 2 efni frá autoglym, 1 frá mothers og eitthvað kallað lexol?

Á einhver fyrir/eftir myndir eftir notkun á efnunum ?

Þetta er farið að pirra mig svolítið hvað leðrið er farið að verða skítugt og bíllinn er ekki kominn í 30 Þús. km. Fara Íslendingar virkilega út á lífið eða út að borða í svona skítugum fötum ? Allavega mun ég aldrei aftur kaupa bíl í þessa vinnu með ljósu leðri, sérpanta frekar svart og bíð 2-4 vikur í viðbót !!!

Hættur að röfla í bili :)

Taxi

(Lofaði að upplýsa eitthvað um mig með tímanum, hér kemur eitt, ég ek um á einum áreiðanlegasta og bilanaminnsta bíl sem er á götunum í dag samkvæmt könnunum, HYUNDAI ) :)

Innsent: 03 Maí 2008, 12:15
frá kolbeinsson
Þetta eru klárlega ekki bestu myndirnar. Hefði þurft að taka þetta nær.

[img]http://memimage.cardomain.com/member_im ... 6_full.jpg[/img]
Þarna er ég búinn að bóna hann með sonax hardwax

[img]http://memimage.cardomain.com/member_im ... 7_full.jpg[/img]
Og þarna er Meguiars komið á

Innsent: 03 Maí 2008, 12:50
frá Hlynzi
kolbeinsson skrifaði:Þetta eru klárlega ekki bestu myndirnar. Hefði þurft að taka þetta nær.


Þarna er ég búinn að bóna hann með sonax hardwax


Og þarna er Meguiars komið á
Veistu ég bara sé engan mun, bíllinn gæti verið óbónaður þessvegna, en hann er hreinn.
[img]http://www.simnet.is/hlynzi/IMG_2062.JPG%20[/img]
Minnir að þetta sé Hraðbónið frá mjöll að verki.
OG þetta var í þá daga þar sem AMG aukahlutina vantaði.

Innsent: 03 Maí 2008, 13:43
frá Sergio
[img]http://simnet.is/gen/IMG_4337.jpg[/img]

1) Skola af bílnum með vatni
2) Setja tjöruhreinsi og biða í 1-2 min
3) Skola léttilega aftur af bílnum
4) Setja felguhreinsi á og byrja þrifa felgur
5) Byrja svampa toppinn og fara svo niður, svampa varlega, og skola af reglulega sápuna af bilnum (þannig sérð maður strax hvor gleymdist ekki eitthvaðstaðar drulla)
6) Þurka bílinn með vatnskasskin
7) Bera Mjallarbónið á bilinn, þegar maður er buinn að setja allan hringinn, byrja bera yfir mjallarbónið Meguiars NXT Wax (wax, ekki í fljotandi formi) svo þurka það af
8) Setja Sonax Hardwax á felgur, ruður, ljós, krómið og glerþakið svo þurka það af
9) Setja Meguiars Hot Shine High Gloss Tire Gel

og maður er reddy til að mæta á samkomu eða skella sér á runtinn