Síða 3 af 6

Innsent: 29 Apr 2008, 23:11
frá Benzari
Sama með þetta bón og önnur Carnauba-bón, endingin blikknar í samanburði við Mjöllina og Gold Class frá Meguiars.

Mæli samt með honum Óla "kelirina" þegar mönnum vantar að láta bóna, vönduð vinnubrögð og langbesta verðið á markaðnum!

Innsent: 29 Apr 2008, 23:17
frá gmg
Ég var að skella Meguiar´s Gold Class á minn w126, það gefur góðan og djúpna gljáa, svo er að sjá hvernig það endist :wink:

Innsent: 30 Apr 2008, 00:02
frá Halldór Björn
gmg skrifaði:Ég var að skella Meguiar´s Gold Class á minn w126, það gefur góðan og djúpna gljáa, svo er að sjá hvernig það endist :wink:
Hvar er best að kaupa og hvað kostar þetta efni? þarf greinilega að fara að prufa þetta

Innsent: 30 Apr 2008, 00:18
frá Benzari
Halldór Björn skrifaði:
gmg skrifaði:Ég var að skella Meguiar´s Gold Class á minn w126, það gefur góðan og djúpna gljáa, svo er að sjá hvernig það endist :wink:
Hvar er best að kaupa og hvað kostar þetta efni? þarf greinilega að fara að prufa þetta
GUMMCO skrifaði:er að vinna hjá Málningarvörur sem eru með umboð fyrir meguiars b+on.kannski að ég komi með töskur á tilboði á næstu samkomu,gott verð þar,ef þið komið í lágmúla í búðina og spyrjið um mig,Gumma get alveg afgreitt ykkur um vörurnar og einnig um concept sem mjög gott líka :)
Lágmúli 9. (Inngangur sunnanmegin, við Háaleitisbraut)

Þetta er dýr vara en gæðin og endingin(notadrjúgt) eru líka eftir því.

Innsent: 30 Apr 2008, 00:28
frá geysir
Mæli með því að menn geri sér ferð til snillinganna í Bónval.
Klárlega góðar vörur á ferð hjá þeim.
1Z Pearl Shampoo er ólýsanleg sápa, þvílík önnur eins snilld og svo svínvirkar 3 þrepa kerfið frá Mothers.
Annars er planið að prufa vörurnar frá Kelerínu þegar peningamálin leyfa.
[img]http://i33.photobucket.com/albums/d80/g ... rif029.jpg[/img]
[img]http://img337.imageshack.us/img337/9689 ... 039ny6.jpg[/img]


En svo stendur Meguiars alltaf fyrir sínu.

Innsent: 30 Apr 2008, 00:46
frá gmg
Benzari skrifaði:
Halldór Björn skrifaði:
gmg skrifaði:Ég var að skella Meguiar´s Gold Class á minn w126, það gefur góðan og djúpna gljáa, svo er að sjá hvernig það endist :wink:
Hvar er best að kaupa og hvað kostar þetta efni? þarf greinilega að fara að prufa þetta
GUMMCO skrifaði:er að vinna hjá Málningarvörur sem eru með umboð fyrir meguiars b+on.kannski að ég komi með töskur á tilboði á næstu samkomu,gott verð þar,ef þið komið í lágmúla í búðina og spyrjið um mig,Gumma get alveg afgreitt ykkur um vörurnar og einnig um concept sem mjög gott líka :)
Lágmúli 9. (Inngangur sunnanmegin, við Háaleitisbraut)

Þetta er dýr vara en gæðin og endingin(notadrjúgt) eru líka eftir því.
Þetta er nú bara dýrt hér, ég keypti Gold Class á 10 dollara og NXT á 14 dollara í USA !

Innsent: 30 Apr 2008, 05:21
frá Júlli
gmg skrifaði:
Benzari skrifaði:
Halldór Björn skrifaði: Hvar er best að kaupa og hvað kostar þetta efni? þarf greinilega að fara að prufa þetta
GUMMCO skrifaði:er að vinna hjá Málningarvörur sem eru með umboð fyrir meguiars b+on.kannski að ég komi með töskur á tilboði á næstu samkomu,gott verð þar,ef þið komið í lágmúla í búðina og spyrjið um mig,Gumma get alveg afgreitt ykkur um vörurnar og einnig um concept sem mjög gott líka :)
Lágmúli 9. (Inngangur sunnanmegin, við Háaleitisbraut)

Þetta er dýr vara en gæðin og endingin(notadrjúgt) eru líka eftir því.
Þetta er nú bara dýrt hér, ég keypti Gold Class á 10 dollara og NXT á 14 dollara í USA !
Ertu ekki að grínast? 10 dollarar? og svo erum við að borga fleiri þúsundkalla fyrir dollu af sonax hardwax hérna heima? uss... það getur nú ekki verið svona hár tollur á þessu. Maður ætti kannski bara að gera sér ferð til útlanda til að versla bón til nokkurra ára, ferðin myndi eflaust borga sig sjálf :lol:

Innsent: 30 Apr 2008, 23:34
frá Mercedes-Benz
Júlli skrifaði:......... það getur nú ekki verið svona hár tollur á þessu. ...
Það er 10% tollur af bóni, fægiefnum og sápum ef ég skil tollaskránna rétt. Ég er nefnilega svolitið að skoða svona bónmál í augnablikinu. :roll:

Innsent: 01 Maí 2008, 04:47
frá Taxi
Jæja, það eru allir með sínar skoðanir á þrifum :)
Þar sem ég er með atvinnutæki þarf ég að bóna á svona 2 vikna fresti, sumar sem vetur, ég nota Sonax Hard Wax þar sem það er þægilegt og fljótlegt í notkum og hreinsar vel tjöru og flugur, á framrúðu (eingöngu) að innan nota ég Autoglym car glass polish, og allar aðrar rúður að innan, filmaðar eða ekki, nota ég Fast Glass frá Autoglym, svo á ég hérna smá trikk fyrir þá sem nota sonax, ég nota tvistinn eða klútinn sem ég notaði til að þurrka bónið af bílnum til að hreinsa allar rúður að utan, þetta skilur eftir örþunna bónhimnu á rúðunum svo vatnið perlar vel af, en ef þarf að nota rúðuþurrkur þá eru þær svo fljótar í gegnum himnuna að framrúðan verður ekki svona eins og fitug eins og gerist með rain-x þegar það fer að eyðast ! Ég kann samt ekki allt í sambandi við þrif og væri til í að fá góð ráð til að hreinsa ljós leðursæti, hvaða efni mæla menn með til þess ?

Gleðilegan verkalýðsdag,
Taxi

Innsent: 01 Maí 2008, 11:05
frá HAMAR
Ég var einmitt að þrífa ljós ''leður'' sæti í gamla taxanum mínum
og ég notaði Interior Shampoo frá Autoglym, virkaði mjög vel.

[img]http://www.autoglym.com/enGB/includes/g ... Is_500.jpg[/img]

Svo er líka til sérstakur leður hreinsir frá þeim.

[img]http://www.autoglym.com/enGB/includes/g ... Lc_500.jpg[/img]