Darri skrifaði:Já ég hef aðeins verið að velta þessu fyrir mér þar sem það styttist alltaf í að ég kaupi mér bíl

, hverjir eru bestir í að setja þetta í bíla og hvað kostar það ? til dæmis í afturrúðu og í báðar afturhurðarnar.
Svo er eitt enn, ég hef nú oft séð bíla með dökkar afturrúður (hurðar) og dökkar framrúður líka. Má bara vera með dökkar framrúður ef það er litað gler eða er í lagi að hafa filmur þar líka ef þær eru ekki of dökkar, hef heyrt að bíllinn komist ekki í gegnum skoðun með filmur frammí

, er það bara bull eða ?
Allar upplýsingar og comment vel þegin
Mitt atkvæði fær Art-bílalist.
Ég er með filmur "framúr" í 500 bílnum og hef aldrei verið stöðvaður af lögreglu vegna þess.
Ég á aukasett af hliðarrúðum í framhurðar sem ég set í þegar ég fer með bílinn í skoðun, svissa bara rétt á meðan skoðunin er framkvæmd. Easy peasy. Er orðinn ansi snöggur að þessu, enda búinn að gera þetta nokkrum sinnum

Persónulega finnst mér sedan bílar sem eru bara með filmur afturí vera mjög hallærislegir, þetta sleppur í station og jeppum. En 4ra dyra bílar eiga að vera með alla leið, annað er svona hálfklarað verk.

Árni Garðarsson
300E 4matic '91
500E '93 ---- GONE
" There are 2 types of cars in the world, Mercedes and all others! "