Var aðeins að duna mér í þessum í dag.
Það er búið að fara í taugarnar á mér í dálítinn tíma að hurðaspjöldin í bílnum eru dökk-blá á meðan innréttingin sjálf er svört. Það hefur svo sem ekki mikið borið á þessu, en í ákveðinni birtu sést þetta og hefur pirrað mig. Þegar ég fékk bílinn var hann reyndar með rauðum framsætum, svörtum afturbekk, bláum hurðaspjöldum og ljós-brúnum rósóttum gólfteppum. Ég tók hann fljótt í gegn að innan, en þessi dökk-bláu hurðaspjöld urðu af einhverjum ástæðum eftir. Eitthvað svona sem gleymdist.
Þessu bætti ég úr í dag og reif öll hurðaspjöldin úr og sprautaði svört. Allt annað að sjá þetta og eitthvað sem var löngu tímabært...
Blátt hurðaspjald og brúnt handfang...
[img]
http://dl.dropbox.com/u/1264580/R222/hurdaspjold1.jpg[/img]
Spjöldin tekin af
[img]
http://dl.dropbox.com/u/1264580/R222/hurdaspjold2.jpg[/img]
Blátt spjald (reyndar búið að sprauta þarna ofan í vasann)
[img]
http://dl.dropbox.com/u/1264580/R222/hurdaspjold3.jpg[/img]
Spjald orðið svart
[img]
http://dl.dropbox.com/u/1264580/R222/hurdaspjold4.jpg[/img]
Komið á sinn stað
[img]
http://dl.dropbox.com/u/1264580/R222/hurdaspjold5.jpg[/img]
Allt annað að sjá þetta...
[img]
http://dl.dropbox.com/u/1264580/R222/hurdaspjold6.jpg[/img]