#22
Þar verð ég að vera hjartanlega ósammála þér, gömlu númerin eru nefnilega eyrnamerkt sínum fyrverandi eigendum. Fólk veit og man hver átti hvaða númer, við búum nú bara á Íslandi þar sem allir þekkja alla.
Ég held að þeir sem ,,eiga (áttu)'' gömul númer geri ekki ráð fyrir því að nokkur maður sé svo ósvífin að taka það, því þessar gömlu plötur eru eyrnamerktar sínum upprunalegu eigendum og í mínum huga er þetta eiginlega eins og að ganga um bæinn og segjast heita Sigurður þegar maður heitir Páll.
Það er ekki ætlun mín að móðga nokkurn mann með þessum skrifum en eins og ég sagði þá líkar mér ekki að sjá númerið á öðrum bíl en upprunalegum eigenda þess.

Ég held að maðurinn sé bara að ruglast pínu lítið, en bara til að leiðrétta hann, kennitölur manna eru þeirra og eingra annara en bílnúmer tilheyra skráningarkerfi bifreiða á íslandi.
Takk fyrir

#23
Gunnar Örn skrifaði:

Þetta eru bara lögin í dag, ég á t.d. R-71 og ég hef ekki hugmynd um hver átti það áður :shock:
Mercedes Benz 280 SE w108 V8 3.5 árg 1972 R-71

Jaguar XJS 3.6 árg.1989 GMG

BMW 735i e32 árg. 1989

Gunnar Már Gunnarsson ( GMG )
GSM 690-2222

http://www.cardomain.com/id/GMG_ICELAND

#24
JBV skrifaði:Hvað er annars að frétta af uppgerðinni? Býð spenntur eftir að fá að sjá hann inn á http://fornbilar.stjarna.is/ Ásamt söguágripi! :wink:
Thetta kemur allt med timanum. Vefurinn er i sma svefni, en vaknar bratt med vetrinum. Eg aetla ad taka mer veturinn i ad klara R222. Kannski verdur hann til fyrr, fer eftir vedrum og vindum (uff, tetta thyska lyklabord... y/z vixlun o.fl..)
Sveinn

#25
sveinn skrifaði:

Þetta kemur allt með kalta vatninu, eins og einhver sagði.
Jón Birgir Valsson
GSM:6990019

#26
sveinn skrifaði:
JBV skrifaði:Hvað er annars að frétta af uppgerðinni? Býð spenntur eftir að fá að sjá hann inn á http://fornbilar.stjarna.is/ Ásamt söguágripi! :wink:
Thetta kemur allt med timanum. Vefurinn er i sma svefni, en vaknar bratt med vetrinum. Eg aetla ad taka mer veturinn i ad klara R222. Kannski verdur hann til fyrr, fer eftir vedrum og vindum (uff, tetta thyska lyklabord... y/z vixlun o.fl..)
Eru menn bara komnir til Mekka :lol:
:beer2:
Benedikt Hans Rúnarsson

#27
JBV skrifaði:Hvað er annars að frétta af uppgerðinni? Býð spenntur eftir að fá að sjá hann inn á http://fornbilar.stjarna.is/ Ásamt söguágripi! :wink:
Ég tók þá ákvörðun í upphafi þegar ég keypti þennan bíl, að ég ætlaði að gera hann upp til þess að nota. Ég á nú þegar sparibíl og þarf því ekki annan. Ég var og er alveg meðvitaður um það að ef ég vanda mig of mikið við uppgerðina, þá tími ég ekki að nota bílinn þegar uppi verður staðið. Málið væri því fallið um sjálft sig og ég þyrfti að kaupa brúksbíl og sæti uppi með tvo sparibíla. Þetta hef ég reynt að minna mig á reglulega síðan.

Ég tók líka þá ákvörðun að rífa ekki bílinn í tætlur eins og ég gerði síðast, heldur taka bara eitt fyrir í einu. Að vera með bíl í skúrnum hjá sér sem allur er í tætlum og verkefnin virðast endalaus alveg þangað til í blá-lokin, getur verið niðurdrepandi. Manni getur fallist hendur þegar maður kemur í skúrinn, og langað helst til að henda þessu drasli sem er allt of mikil vinna við og borgar sig aldrei að standa í. Það eru nefnilega örlög margra fornbíla í uppgerð hefur mér sýnst; hálfkláruð verk sem enda á haugunum. Ég hef því reynt að gera við bílinn skref fyrir skref, eitt og eitt í einu, án þess að gera hann að flaki í skúrnum.

Ég byrjaði á því að skipta um alla vökva á bílnum (olíu, vatn, bremsuvökva o.s.frv.) og losa upp á hjólum/bremsum og kúplingu. Næst fór ég yfir kveikjukerfi og skipti um kerti og setti í gang. Þar sem ég ætla að nota bílinn, ákvað ég líka að skipta um öll bremsurör/slöngur, bensínrör/slöngur og yfirfara stýrisbúnað.

Eftir að hafa sannfærst um að kramið væri í þokkalegu standi, hófst ég handa við að ryðbæta bílinn. Þegar ég sá bílinn fyrst, virtist hann bara ryðgaður í frambrettum og eitthvað aðeins í sílsum, en eins og alltaf þegar byrjað er að pota þá kemur ýmislegt í ljós. Ég byrjaði á mestu skítavinnunni eða botninum, aðallega til þess að ég gæti skipt um bensínrör/bremsurör og gekk frá honum bæði að neðan og innan. Þegar ég tala um botninn, þá á ég líka við hjólskála og farangursgeymslu að innan. Þetta er nú allt búið og nú er ég farinn að gera þetta skemmtilega sem sést. Ég er nú þegar búinn að ganga frá afturbrettum skottloki og þaki og er núna að vinna í hurðunum. Ætlunin er síðan að enda á frambrettum og húddi. Ég er líka búinn að kaupa nýtt teppasett í bílinn og ætla að taka bílinn að innan svona í hjáverkum frá hinu.

Ég læt fylgja hér nokkrar myndir að því sem ég er að gera núna. Eins og sést er skúrinn hjá mér frekar þröngur og þarna er ég að sprauta við frekar frumstæðar aðstæður. En, eins og ég sagði í upphafi þá er það allt í lagi, því þetta á ekki að vera fullkomið;

[img]http://fornbilar.stjarna.is/img/R222/R222_02.JPG[/img]
Afturhurðin tilbúin (í sprautuklefa úr yfirbreiðsluplasti :wink: )...

[img]http://fornbilar.stjarna.is/img/R222/R222_03.JPG[/img]
...og þarna er hún komin á, og framhurðin af...

[img]http://fornbilar.stjarna.is/img/R222/R222_04.JPG[/img]
...Þessa mynd tók ég svo í morgun af framhurðinni, en ég sprauta hana líklega á morgun.
Seinast breytt af sveinn þann 02 Nóv 2006, 16:26, breytt 1 sinni alls.
Sveinn

#28
Takk fyrir thetta Sveinn. Thetta er frabaertt. Thad verdur gaman ad fylgjast med framhaldinu/ :clapping: :clapping: :clapping:
Jón Birgir Valsson
GSM:6990019

#29
Bílaviðgerðir í beinni :wink: :lol:

...dóttir mín fór í bústað seinnipartinn, þannig að mér gafst tækifæri á að juða yfir framhurðina.

[img]http://fornbilar.stjarna.is/img/R222/R222_06.jpg[/img]

...ég er samt ekki alveg að fatta þetta með rykið. Ekkert alvalegt, en samt er sama hvað ég geri, alltaf eru einhver smá hár/korn þarna... :? ...jæja, ekkert sem skiptir máli, samt; hvaðan kemur þetta???
Seinast breytt af sveinn þann 04 Nóv 2006, 02:54, breytt 1 sinni alls.
Sveinn

#30
Það kemur aðalega ryk af þér og slöngunni þegar þú ert að sprauta, en hárin...

Ertu nokkuð farinn að missa hár ? :lol:
Mercedes Benz E 55 AMG Kompressor 2003

Mercedes Benz E 500 2003

Mercedes 500 SL 1992

Mercedes 560 SEC 1991

Og eitthvað meir...