vetrardekk

nagladekk
Heildar atkvæði: 14 (48%)
heilsársdekk
Heildar atkvæði: 7 (24%)
microskorin dekk
Heildar atkvæði: 3 (10%)
harðkorna dekk (Engin atkvæði)
loftbólu dekk
Heildar atkvæði: 5 (17%)
sumardekk (Engin atkvæði)
annað (Engin atkvæði)
Heildar atkvæði: 29

#12
Var með bestu Dunlop vetrardekkin, dekk sem Smári mælir með (man ekki alveg hvað þau heita). Ég fór meira að segja til Akureyrar síðasta vetur á honum og það var ekkert vesen. Var ekki einu sinni með sandpoka í skottinu til að þyngja hann.

Ég væri aldrei til að fórna aksturseiginleikum bílsins (amk að mínu mati er þetta ekkert sami bíll að vera á negldum vs ónegldum). Þar að auki makar maður tjöru upp af götunni á þessu helvíti.
Mercedes Benz E500 2003 08/02

Mercedes Benz 400E 1993

http://members.cardomain.com/lydur

#13
Ég á gömul hálfslitin vetrardekk sem eru örugglega meira en nóg undir 4matic til að hann komist útum allt hér í sveit.

En ég á engin dekk undir diesel fyrir veturinn, ætli maður sjái ekki bara til hvernig honum gengur á sumardekkjunum til að byrja með.



En ástæðan fyrir því að við hérna út á landi erum svona hrifin af nagladekkjum er sú að aðstæður á vegum út á landi eru bara allt aðrar en á höfuðborgarsvæðinu. Jú þjóðvegur 1 er nú stundum ágætur á veturna, en oft er það klaki sem myndast úr snjónum. Ég er alltof oft akandi um á klaka á veturna, sérstaklega þegar maður er kominn af þjóðvegi 1.
Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin

#14
Ásgeir Yngvi skrifaði: En ástæðan fyrir því að við hérna út á landi erum svona hrifin af nagladekkjum er sú að aðstæður á vegum út á landi eru bara allt aðrar en á höfuðborgarsvæðinu. Jú þjóðvegur 1 er nú stundum ágætur á veturna, en oft er það klaki sem myndast úr snjónum. Ég er alltof oft akandi um á klaka á veturna, sérstaklega þegar maður er kominn af þjóðvegi 1.
Ég held það séu nú flestir sem skilja það að þeir sem fara útur bænum mikið eða búa bara úti á landi séu á nagladekkjum, en það er algjör óþarfi fyrir fólk eins og mig sem fer ekki rassgat....ætti að lækka verðið finnst mér á vetrardekkjum sem eru ekki með nöglum, ríkið ætti að mínu mati að greiða þetta niður, myndu spara einhvern smá pening á vegaframkvæmdum fyrir vikið þar sem færri væru þvi að nota nagladekk.
Halldór Björn Audi 1.8T Quattro Turbo
Mercedes Benz C36 ///AMG - Seldur
Olbogi skrifaði:
valdi skrifaði:þú þyrftir að finna þér nýtt grill.... það er farið að ryðga smá grillið í honum hjá þér :wink:
og afhverju stendur hann uppá bílasölu???
ef égætti svona þá fengi þetta aldrei að kólna... :mrgreen:
ef þú ættir svona væri hann bilaður
http://www.thunderbird.is" onclick="window.open(this.href);return false;

#15
Ég er með microskorin en ætla að fá mér harnkornadekk á næsta ári.
Andri Hrafn
---



Mercedes Benz E220 W124 1995
Subaru Forrester 2005,
Yamaha WR 450 F 2004

#16
ég er yfirleitt á nagladekkjum, aðallega vegna þess að ég er mikið í sveitinni. Ég var með Bridgestone loftbóludekk á W126 sem ég átti og var mjög ánægður með þau.

En þetta með nagladekk í Rvk finnst mér ekkert að því að fólk sé á þeim meðan þessir mannfjandar salta göturnar þarna.
Oddur Pétursson

Volvo 240 2.3 1986
Volvo 850 2.5 1994

#17
Corky skrifaði:ég er yfirleitt á nagladekkjum, aðallega vegna þess að ég er mikið í sveitinni. Ég var með Bridgestone loftbóludekk á W126 sem ég átti og var mjög ánægður með þau.

En þetta með nagladekk í Rvk finnst mér ekkert að því að fólk sé á þeim meðan þessir mannfjandar salta göturnar þarna.
Þarft einmitt ekki nagla afþví þeir salta,
salt býr til drullu og fyrir utan það að þá leysir það upp tjöruna í malbikinu
og þeir sem keyra um á nöglum spæna því malbikinu ennþá meira upp.

Svo finnst öllum skrýtið að allar helstu stofngötur Reykjavíkur séu ónýtar eftir
einn vetur...... I wonder why...... :roll:
Reynir Ari Þórsson
848-8699

W124 - Mercedes Benz E 420
W124 - Mercedes Benz 300 Diesel

#18
Reynir Ari skrifaði:
Corky skrifaði:ég er yfirleitt á nagladekkjum, aðallega vegna þess að ég er mikið í sveitinni. Ég var með Bridgestone loftbóludekk á W126 sem ég átti og var mjög ánægður með þau.

En þetta með nagladekk í Rvk finnst mér ekkert að því að fólk sé á þeim meðan þessir mannfjandar salta göturnar þarna.
Þarft einmitt ekki nagla afþví þeir salta,
salt býr til drullu og fyrir utan það að þá leysir það upp tjöruna í malbikinu
og þeir sem keyra um á nöglum spæna því malbikinu ennþá meira upp.

Svo finnst öllum skrýtið að allar helstu stofngötur Reykjavíkur séu ónýtar eftir
einn vetur...... I wonder why...... :roll:
Eina sem mér fannst að því að vera á loftbóludekkjum í Rvk var einmitt út af söltuninni, tjaran tróð sér svo í dekkin og þá virka þau ekki eins og þau eiga að gera, en með nagladekkin skiptir það engu því naglarnir ná alltaf gripi þó það setjist tjara í þá
Oddur Pétursson

Volvo 240 2.3 1986
Volvo 850 2.5 1994

#19
en með nagladekkin skiptir það engu því naglarnir ná alltaf gripi þó það setjist tjara í þá

En bara á blautum klaka séu dekkin laus við tjöru.
Annars ertu búinn að lengja hemlunarvegalengdina í öðrum færum með nöglunum.
Bíll á nöglum skautar talsvert meira við nauðhemlun en bílar án nagladekkja.

Annars keyri ég bíla á negldum Bf Goodrich all terrain í vinnunni,en einkabíllinn er á eins dekkjum ónegldum og míkróskornum.
Mér finnst míkróskornu dekkin virka betur í hálku en nagladekkin og er þá að miða við vegi misjafnlega góða úti á landi.
Eyjólfur Karlsson
--------------------------------------
Mercedes Benz 250S 1968 R42095
Mercedes Benz 290GDT 1985 R16377

#20
Var á ónegldum allan síðasta vetur, fór meira að segja austur fyrir fjall mörgum sinnum og aldrei missti bíllinn grip.

Bara passa sig að tjöruhreinsa þau reglulega.
Reynir Ari Þórsson
848-8699

W124 - Mercedes Benz E 420
W124 - Mercedes Benz 300 Diesel