Borðar þú skötu á Þorláksmessu ?

Nei - ég borða ekki þennan "skemmda" mat.
Heildar atkvæði: 20 (63%)
Já - og finnst þetta vera herramanns matur.
Heildar atkvæði: 7 (22%)
Ég fæ mér skötu ef mér er boðin hún - t.d. á vinnustað eða hjá vinum eða ættingjum. Þó svo mér þyki hún hvorki góð né slæm.
Heildar atkvæði: 5 (16%)
Heildar atkvæði: 32

Re: Ljóta ands****** stybban...

#11
Látið ekki svona strákar....þetta er okkar "arfleið" og hefð að borða "skemmdann mat" þetta er ágætt með öllu meðlætinu ( kartöflum, rófustöppu og hamsatólg) ásamt saltfiskinum svona með...
Þetta er skemmtilegur sér Íslenskur siður, sem má ekki leggjast af eins og allt annað sem íslenskt hefur verið í gegnum aldirnar af því að það var ekki nógu "fínt, hipp eða Cool"
Það hittast allir í fjölskildunni einu sinni á ári og borða þennan þjóðlega mat núna í yfir 20 ár og ég myndi ekki vilja missa af þessum sið og venju vegna þess...

Sé það ekki gerast yfir "flatböku"..... 8)

Hafið það gott um hátíðirnar
Kv Halli H.


Halli H. - GSM 695-5477

1995 Grand Cherokee Limited 5,2 V8
2001 VW Golf 1,6

Vantar MB G Wagon ...einhver?

Re: Ljóta ands****** stybban...

#12
Afhverju eru menn sem borða þetta alltaf taldir svona miklar hetjur? Ár eftir ár eru viðtöl við menn sem selja og borða skötu á Þorláksmessu. Eru þetta ekki bara kjánar?
Andri Hrafn
---



Mercedes Benz E220 W124 1995
Subaru Forrester 2005,
Yamaha WR 450 F 2004

Re: Ljóta ands****** stybban...

#13
andrz skrifaði:Afhverju eru menn sem borða þetta alltaf taldir svona miklar hetjur? Ár eftir ár eru viðtöl við menn sem selja og borða skötu á Þorláksmessu. Eru þetta ekki bara kjánar?
Þeir sem selja þetta eru auðvitað miklir snillingar - að selja mönnum ónýtan mat sem þeir borða með bestu lyst er auðvitað bara snilld 8)
Benedikt Hans Rúnarsson

Re: Ljóta ands****** stybban...

#14
Benni skrifaði:
andrz skrifaði:Afhverju eru menn sem borða þetta alltaf taldir svona miklar hetjur? Ár eftir ár eru viðtöl við menn sem selja og borða skötu á Þorláksmessu. Eru þetta ekki bara kjánar?
Þeir sem selja þetta eru auðvitað miklir snillingar - að selja mönnum ónýtan mat sem þeir borða með bestu lyst er auðvitað bara snilld 8)
Ég borða skötu og fynnst hún bara fín en þið eruð ekki að fatta aðal point-ið í skötunni, jóla maturinn verður 7 sinnum betri eftir að hafa borðað þennan "óbjóð" eins og þið kallið þetta.
Finnbogi Ágústsson
W201 M103 3.0 BSK Elskan
W109 M116 3.5 SSK Viðhaldið

Re: Ljóta ands****** stybban...

#15
Ég át að sjálfsögðu skötu. Hún var einstaklega vel heppnuð hjá þeim í Baulunni þetta árið. :D
Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin