Re: Felguspray fyrir álfelgur

#12
sveinn skrifaði:Keypti lakkið sem Gummi benti á í Málningarvörum. Slípaði þær upp, sparslaði í smáholur, grunnaði og lakkaði. Kom mjög vel út. Ég ætla nú samt aðeins að bíða með að setja þær undir, því það er ekki lengur hálka. Ætla að reyna að vera á monoblock eins lengi og ég get... :wink:

[img]http://fornbilar.stjarna.is/img/230ce/Achtlock1.jpg[/img]

[img]http://fornbilar.stjarna.is/img/230ce/Achtlock2.jpg[/img]
Þetta er fagmannlega gert Sveinn, þú þarft ekki að skammast þín fyrir þessa vinnu.
Ólafur Kolbeinsson
Gsm 820-6419

Re: Felguspray fyrir álfelgur

#15
Ég þakka fyrir hrósið :) ...þetta er nú bara smá handavinna, sérstaklega undirvinnan, og eitthvað sem allir geta sem hafa nennu til. Árangurinn kom mér samt á óvart, og ég fór meira að segja að horfa gagnrýnum augum á flottu monoblock felgurnar :lol: Þetta lakk sem Gummi benti mér á er mjög gott, drjúgt og jafnast vel. Einnig er liturinn fallegur, og mæli með því.
Sveinn