C 200 eða E200

#1
Sælir félagar.
Ég er búinn að eiga C 200 K bíl árg 2001 í rúm 3 ár og er að hugsa um að skipta og er að spá í E 200 K bíl árg 2007.
Ég hef ekki haft tækifæri til að prófa E 200 bíl ennþá. Hver er aðal munurinn á C og E týpunni fyrir utan að E er örlítið stærri?
Hver er munurinn á aksturseiginleikum og undirvagni.
Skoðanir manna með reynslu eru vel þegnar.

Kveðja, Gulli


#2
E bíllin er náttúrulega bara næsti klassi fyrir ofan,

bílarnir eru mjög lík smíði sem slík, þú færð alveg sama karakterinn yfir, bíllin er bara stærri, þægilegri og meiri íburður í honum,

E200k eru ágætis bílar, 07 facelift bílarnir eru smekklegir í avantgard útfærslu og vélin nú tæp 190hö,

ég persónulega ráðlegg þér samt að skoða 6cyl bíl, það er eitthvað sem þú sæir ekki eftir,

en það er búið að flytja inn mjög grimmt af 07 E200k, þannig að þeir fást á fínum prís, ekki borga yfir 5m fyrir slíkan bíl,

varðandi bilanatíðni er hún bara eins og öllum öðrum benzum framleiddum frá og með enda síðustu aldar.. há, varahlutir í E bílin eru hinsvegar á sama verði og í C bílin, enda margir hverjir sömu hlutirnir,

þú átt ekki eftir að sjá eftir að fara úr w203 í w211, en það er jú rökréttasta uppfærsla í bókini,

ef það skiptir þig máli, þá er samt væntanlegur nýr E class, þannig að þú kæmir ekki til með að eiga w211 bílin lengur en 1-2 ár áður en hann yrði gamla útlitið
w124 400E Widebody (500 clone)
Camaro lsx/6spd
------------------
w203 C32 AMG 19" seldur
w210 E230 avantgard seldur
w210 E240 classic (moli) seldur

Re: C 200 eða E200

#3
gulli skrifaði:Sælir félagar.
Ég er búinn að eiga C 200 K bíl árg 2001 í rúm 3 ár og er að hugsa um að skipta og er að spá í E 200 K bíl árg 2007.
Ég hef ekki haft tækifæri til að prófa E 200 bíl ennþá. Hver er aðal munurinn á C og E týpunni fyrir utan að E er örlítið stærri?
Hver er munurinn á aksturseiginleikum og undirvagni.
Skoðanir manna með reynslu eru vel þegnar.

Kveðja, Gulli
örlítð.... ekki alveg rétta orðið.
Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin

#4
Mér fannst persónulega E200 K verulega máttlaus miðað við C200 K þannig að ég efast um að þú yrðir sáttur við samanburðinn. Sammála Ívari, 6cyl er pottþétt málið (eða bara V8!!!)
E46 330d Touring

(E36 318is)

(w124 E420 ´95)

(w126 300SE ´87)

E 200

#5
Ívar takk fyrir góðar upplýsingar.

Þetta með stærðina þá er E bíllinn 27,5 cm lengri og 4,3 cm breiðari en C bíllinn og lengd milli hjóla er E bíllinn 9,4 cm lengri. Þá er E bíllinn 2,8 cm breiðari milli hjóla. Þannig að þetta munar ekki neinum ósköpum.

Gulli

#6
gulli þþessi stærðarmunur er gífurlegur þegar það kemur að bílum, þú sérð að það munar ekki nema meter á lengd á minnstu smábílum og stæðstu lúxusbílum, og 20-30cm,

stærðar flokkarnir hafa verið dáldið á þa leið,

minnstu smábílarnir eru undir 4m langir, 160-165 á breidd sirka,

það sem við köllum millistærðarbíla, t.d 3lína bmw, C class, Avensis og sá flokkur eru bílar sem eru í kringum 4.5m á lengd, og rúmlega 170cm breiðir,

þar fyrir ofan kemur efri millistærðar flokkur, sem er þá E class, 5 línma, A6 audi og flr bílar, þessi bílar eru og hafa í 20ár verið frá 4.7m langir uppí 4.85m og í algegastir í kringum 175-180cm breiðir,

svo kemur klassi 700bmw, S línu benz, 8series audi og flr, þessir bílar voru alltaf rétt rúmir 4.9m á lengd og 180cm á breidd, og teygðu sig svo yfir 5metrana í L útfærslum, þeir tóku svo að stækka uppú 1990, en þá kom 1409 bíllin 5 metra langur í stuttri útfærslu, og 1994 kemur ný 7 lína sem er 5.08m langur stuttur og tæpir 5.3m á lengd í útfærslu, og um 185cm breiður, en bmw er yfirleidd breiðari versus lengd heldur en benz, svo minkaði þetta aftur með w220 S classinum, en BMW héltu stæðini í um og yfir 5m með "nýju sjöuni" w221 hefur svo stækkað töluvert aftur,


þannig að þú sérð að þrátt fyrir að sentimetranir séu ekki margir er stærðarmunurinn mikill, þú finnur fyrir auka 30cm í skotti og fótaplássi,

þess má svo geta að amerísku pikkuparnir er flestir í kringum 5.5m á lengd og lengstu fara yfir 6 metra,
w124 400E Widebody (500 clone)
Camaro lsx/6spd
------------------
w203 C32 AMG 19" seldur
w210 E230 avantgard seldur
w210 E240 classic (moli) seldur

#7
kannski gaman að skjóta inn.. að Camaroinn minn er 4.91m á lengd og 193cm á breidd, og á að heita "sportscar" :lol:
w124 400E Widebody (500 clone)
Camaro lsx/6spd
------------------
w203 C32 AMG 19" seldur
w210 E230 avantgard seldur
w210 E240 classic (moli) seldur