Komið að dekkjarskiptum.

#1
Búinn að vera að gera bílinn klárann fyrir sumarið og eitt af því var að polera felgurnar og setja nýju dekki undir.

Það eina sem ég hafði áhyggjur af var að láta einhvern hálvita á dekkjaverkstæði skemma fyrir mér þessa vinnu.
Þeir sem tóku gömlu dekkin af vírslitu þau við það.

Eftir smá eftirgrenslan þá fann ég það út að Hjólbarðahöllinni í Fellsmúla væri komin með nýja dekkjavél.

Hún er þannig hönnuð að járn kemur aldrei við felguna. Meirháttar flott græja og svín virkaði.

Mæli með að allir sem láta sér annt um felgur og dekkin hjá sér fari til þeirra.


#2
Ég fer alltaf á Hjólbarðaverkstæði Sigurjóns í Hátúninu. Þeir hafa aldrei skemmt neitt fyrir mér og ekki einu sinni mjög svo viðkvæmu felgurnar undan 1955 Benzanum mínum sem voru allar nýsprautaðar og fínar. Það er vandað verkstæði fyrir kröfuharða og ekki skemmir 15% aflsáttur til okkar sem erum borgandi félagar í Mercedes-Benz klúbbnum. :wink:
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)

#3
Það er búið að nefna hér þau tvö dekkjaverkstæði sem ég skipti alfarið við. Hjólbarðahöllin hefur farið afar blíðum höndum um bílfelgurnar mínar og Sigurjón er sá eini sem kann eitthvað með mótorhjóladekk að fara hér á landi.
Volvo XC 90 2005 V8 (frúarbíllinn)
Suzuki Hayabusa GSX1300R 1999
Alpina B3 biturbo 2008 #101
cron