Frá Öskju

#1
Kæru Stjörnufélagar,

Ég vil byrja á það þakka ykkur fyrir síðast og það var gaman að fá ykkur í heimsókn í Öskju fyrir nokkrum vikum. Mig langar að fá að taka þátt í umræðum ykkar á vefnum sem við í Öskju fylgjumst með. Hér í spjallþræði að neðan, http://www.stjarna.is/forum/viewtopic.p ... highlight= er fjallað um verðlækkun á notuðum bílum. Til að fyrirbyggja eðlilegan misskilning þá langar mig að koma inn með nokkrar skýringar.

Verð á notuðum bílum.

Bílgreinasambandið er með verðgrunn fyrir notaða bíla. Hann virkar þannig að umboðsaðilar hvers merkis, Askja í tilviki Mercedes-Benz, setja inn verð á nýjum bílum samkvæmt verðskrá og búnaði. Eldri gerðir tengjast svo “nývirði” bílanna og lækka hlutfallslega eftir því sem þeir eldast. Verðskrá Öskju fyrir nýja Mercedes-Benz er mjög hagstæð í dag og er það ein af ástæðum fyrir lækkun á verði notaðra Mercedes Benz síðustu mánuði, þar sem þeir eru tengdir nýju bílunum. Þá vegur það mjög þungt að þegar Askja hóf sölu á Mercedes Benz þá styðst fyrirtækið við afar hagstætt gengi evrunnar og viljum við að viðskiptavinir okkar njóti þess. Þess má líka geta að “nývirðin” höfðu ekki verið uppfærð um nokkuð langt skeið, sem má rekja til þess að ekkert sölumboð var fyrir bílanna meginpart ársins 2004 og byrjun árs 2005. Það eru því samverkandi ástæður fyrir stöðunni á markaðinum í dag.

Bílaverkstæðið.

Verkstæðið er að komast á fullt skrið, biðlisti er reyndar ekki nema 1-3 dagar í dag, en það er þjónustustig sem við viljum helst búa við, og við reynum ef við getum að taka bíla strax inn til viðgerðar. Við erum að bæta við okkur bifvélavirkjum og gerum ráð fyrir að í lok maí verið verkstæðið okkar fullmannað. Verkstæðið er afar vel búið, starfsfólk hefur hlotið góða þjálfun og hópur bifvélavirkja okkar samanstendur af miklum fagmönnum.

Bílavarahlutir.

Við í Öskju hvetjum fólk til að gera verðsamanburð – stefnan er að bjóða gott verð og halda því góða orðspori sem byggt hefur verið upp í kringum þjónustu á Mercedes-Benz. Við þurfum samt alltaf að hafa í huga þegar verð eru borin saman, að verið sé að bera saman epli og epli. Við höfum gert okkar eigin kannanir og get ég fullvissað alla um niðurstöður þeirra eru jákvæðar.

Símasvörun.

Við þökkum ábendingar um þau mál hér að neðan. Við ætlum okkur að veita fyrirtaksþjónustu og vil ég hvetja þá sem hafa tillögur, ábendingar eða annað til þess að hafa beint samband við mig eða Ágúst Guðmundsson, þjónustustjóra. Starfsfólk Öskju er þróttmikill og góður hópur, liðsandinn er frábær og við ætlum okkur að veita ykkur eins góða þjónustu og okkur framast er unnt. Þess vegna metum við mikils að fá upplýsingar frá ykkur beint í æð.

Og að lokum. Við bjóðum alla laugardaga í apríl og maí upp á ókeypis hemla-, stefnu- höggdeyfaskoðun. Hvet ykkur til að koma, skoða húsakynnin, fá ykkur kaffisopa og e.t.v reynsluaka bíl, t.d. nýja A-Class bílnum sem er enginn “smá” bíll !

Með vinsemd og virðingu.

ASKJA

Jón Trausti Ólafsson

Framkvæmdastjóri


#3
Gott að menn eru á tánum í nýja umboðinu.

Rúnar a.ka. "Mercedes-Benz" var ekki lengi að biðjast afsökunnar fyrir hönd fyrirtækisins eftir það sem miður fór í heimsókn minni þarna í dag.

Það var augljóst að starfsmenn eru fullir af áhuga og þjónustulund.

Eins og kemur fram hér að ofan á eftir að manna allar stöður. Fékk aðeins að finna fyrir því, því miður.
Teddi :mercedes:

#4
Ég hef alltaf fengið góða þjónustu á verkstæðinu og varahlutaversluninni. Þessi sölumaður sem ég talaði við ætti kannski að fá smá lesefni um AMG, Brabus og Carlsson svona til að skerpa aðeins á vitneskju sinni um bílana og jafnvel kíkja yfir bæklingana um bílana sem hann er að selja almennt, þar sem hann kunni ekki að stilla klukkuna í bílnum! Einnig finnst mér að þegar maður er með vandamál eins og að lesa tölvuna til að finna út hvaða varahluti þarf að panta ætti það að geta gerst án þess að maður þurfi fyrst að panta tíma til að lesa tölvuna og fá svo annan tíma nokkrum vikum seinna til að setja varahlutina í! Þetta ver væntanlega eitthvað sem fyrirtækið mun bæta með tímanum!

Kveðja
Björgvin Pétursson
280 SEL W126
E420 W124
230CE W123
230C W123
S320 W140
190E 2.6 W201
C36 AMG W202
C320 Brabus W203
E320 W124
230CE W124

http://www.cardomain.com/ride/3891358/1 ... nz-e-class" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Frá Öskju

#6
Björgvin Ólafsson skrifaði:
ASKJA skrifaði:Og að lokum. Við bjóðum alla laugardaga í apríl og maí upp á ókeypis hemla-, stefnu- höggdeyfaskoðun. Hvet ykkur til að koma, skoða húsakynnin, fá ykkur kaffisopa og e.t.v reynsluaka bíl, t.d. nýja A-Class bílnum sem er enginn “smá” bíll !

Með vinsemd og virðingu.

ASKJA

Jón Trausti Ólafsson

Framkvæmdastjóri
Hvernig er opnunartíminn hjá ykkur á laugardögum?

kv
Björgvin
9 - 13:00
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)

#7
Fær maður ekki bara vinnu þarna þegar ég flyt suður í haust þegar sumarstarfsmenn fara í skóla! :help:


er annars að fara að vinna í TM Húsgögnum
Kv.Heimir Jónsson

W124 300E 4matic 1987(svartur)
w126 500se 1986 (ljósgrænn)


Heimirjons@hotmail.com
S:699 3068

#9
hvað varðar verðlækkun á notuðum bílum þá er hún ekkert óeðlileg á "nýju" ári og svo er gengið lágt og innflutningur á notuðum bílum hefur aldrei verið meiri. Held að menn geti gert góð kaup síðsumars þegar notaði bílamarkaðurinn hvellspringur, ef hann er ekki þegar búinn að springa...
Mercedes Benz W123 230E árg. 1982 -húsbóndabíllinn-
Toyota Land cruiser 120 VX -frúarbíllinn-
Honda CB600 -leikfangið-
-Brynjar Sigmundsson-
atligu skrifaði: ...veifað til nágrannans á sínum Toyota Yaris sem kæmist í hólfið milli framsætanna hjá þér!!!