Lykilhulstur fyrir 124 með fjarlæsingu

#1
Keypti tvö lyklahylki frá Kína. Kemmur vel út og ekkert mál að flytja innvolsið á milli. Fór svo í Lásaþjónustuna á Grensásveg og þeir skáru lyklina fyrir mig.

Þessir tveir til hægri eru nýju lyklarnir
Reyndar er þetta sama lykilefni og að öðrum 124. Svona ef menn vilja hafa fínt hulstur fyrir lykilinn.


Jón Ketilsson S. 8662773

Að eiga Benz eru trúarbrögð.

Re: Lykilhulstur fyrir 124 með fjarlæsingu

#3
Hlynzi skrifaði:Já þetta er sniðugt, hvernig er þetta gæðalega séð, tollir vel saman og svona ?

En rétt að þetta er mun smekklegra en bara lykilinn og fer betur í vasa.
Gæðin virðast þokkaleg. En ég hef grun um að þegar fram í sæki þá saki ekki dropi af lími.

Fer eftir því hvernig er tekið á hulstrinu þegar startað er.

Já, svona fer betur í vasa og stingur ekki gat á hann.
Jón Ketilsson S. 8662773

Að eiga Benz eru trúarbrögð.

Re: Lykilhulstur fyrir 124 með fjarlæsingu

#7
Keypti einmitt svona og þetta er bara ágætis dót en maður þarf að skoða raufina fyrir díóðuna áður en maður þrýstir hlustrinu saman. Ég fékk semsagt tvær gerðir sendar og önnur þeirra var verr hönnuð og beygði díóðuna og þegar ég beygði hana til baka þá brotnaði annar teinninn. Þurfti að kaupa nýja og lóða í.