Nýtt lén mbclub.is í staðinn fyrir stjarna.is

#1
Mercedes-Benz klúbbur Íslands (MBKÍ) hefur tekið í notkun nýtt lén fyrir starfsemi sína og er það http://www.mbclub.is" onclick="window.open(this.href);return false;.

Ástæðan fyrir því að stjórn MBKÍ ákvað að breyta um lén er sú að við viljum tengja síðuna betur Mercedes-Benz nafninu (MB í MBClub) sem og að lénið sé svipað og sumir systurklúbba okkar nota erlendis.

Til stóð að taka þetta lén í notkun í þessum mánuði og átti að tilkynna það sérstaklega. Hins vegar komu upp vandamál í gær (21/11/2012) með vefinn okkar á stjarna.is, og spjallþráðinn stjarna.is/spjall, var ákveðið að skella mbclub.is strax í loftið enda var sá vefur að mestu leyti tilbúinn.

Vænta má einhverja breytinga á vefnum og spjallinu á næstu mánuðum sem og að ný netföng fyrir klúbbinn verði einnig tilkynnt innan skamms.


-----------------------------------------------------
Stjórn Mercedes-Benz klúbbs Íslands
Netfang: mbki @ mbclub.is

Re: Nýtt lén mbclub.is í staðinn fyrir stjarna.is

#3
Benni skrifaði:Hvernig líst mönnum á þessa breytingu?

Væri gaman að fá athugasemdir frá spjallverjum :D
Þetta verður svipað erfitt og þegar RÚV breytti útvarpsfrétta stefinu hérna um árið :mrgreen:


...En ætli maður komist ekki yfir þetta eins og svo margt annað ;)
Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin

Re: Nýtt lén mbclub.is í staðinn fyrir stjarna.is

#4
Ásgeir Yngvi skrifaði:
Benni skrifaði:Hvernig líst mönnum á þessa breytingu?

Væri gaman að fá athugasemdir frá spjallverjum :D
Þetta verður svipað erfitt og þegar RÚV breytti útvarpsfrétta stefinu hérna um árið :mrgreen:


...En ætli maður komist ekki yfir þetta eins og svo margt annað ;)
:lol: :tumbsup:

Þetta er fínt, kemur reyndar hvítur skjár við útskráningu en það eru líklega bara byrjunarörðugleikar.

Hvar getur maður náð í númeraplöturamma áður en þessir með gömlu merkingunni verða útdauðir? :|
Teddi :mercedes:

Re: Nýtt lén mbclub.is í staðinn fyrir stjarna.is

#5
Þetta er flott og miklu meira professional, þegar maður benti fólki á stjarna.is grínuðust margir með hvort þetta væri hommaspjall og við ræddum bara um að taka hvorn annan í stjörnuna, þannig að ég fyrir mitt leyti styð lénsbreytinguna heilshugar til að sleppa við að heyra stjörnutökubrandarana :D

kveðja
Björgvin Pétursson
280 SEL W126
E420 W124
230CE W123
230C W123
S320 W140
190E 2.6 W201
C36 AMG W202
C320 Brabus W203
E320 W124
230CE W124

http://www.cardomain.com/ride/3891358/1 ... nz-e-class" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Nýtt lén mbclub.is í staðinn fyrir stjarna.is

#6
Benzari skrifaði: :lol: :tumbsup:

Þetta er fínt, kemur reyndar hvítur skjár við útskráningu en það eru líklega bara byrjunarörðugleikar.

Hvar getur maður náð í númeraplöturamma áður en þessir með gömlu merkingunni verða útdauðir? :|
Ég held að það séu enn til einhverjir númerarammar, þurfum klárlega að skoða það....
Skal athuga þetta hjá stjórninni og koma því svo á framfæri.
Verður þá síðasti séns til þess að fá sér stjörnuramma ;)

Varðandi útskráningu þá á enn eitthvað eftir að breytast þar sem við þurftum að henda þessu í loftið í snatri :evil:
Benedikt Hans Rúnarsson

Re: Nýtt lén mbclub.is í staðinn fyrir stjarna.is

#9
Í fyrramálið má búast við því að slóðirnar verði eins og þær eiga að vera.

http://mbclub.is" onclick="window.open(this.href);return false; en ekki http://mbclub.is/joomla" onclick="window.open(this.href);return false;

og

http://mbclub.is/spjall" onclick="window.open(this.href);return false; í stað http://mbclub.is/joomla/spjall" onclick="window.open(this.href);return false;

Og áframsendingunum af stjarna.i breytt líka.

Eru spjallverjar beðnir um að uppfæra bókarmerkin eftir það.
Jón Ketilsson S. 8662773

Að eiga Benz eru trúarbrögð.