Frumsýnum nýjan GLK á laugardaginn

#1
Sælir kæru meðlimir Stjörnunnar,

Nýr Mercedes-Benz GLK verður frumsýndur í Bílaumboðinu Öskju nk. laugardag 25. ágúst á milli 12 og 16. Nýja útfærslan af þessum vinsæla, fjórhjóladrifna sportjeppa er talsvert breytt í útliti og hönnun. Framhluti og innrétting GLK hafa verið endurhönnuð og eru nú enn glæsilegri en áður. Meðal nýjunga í búnaði eru LED-dagljósabúnaður og sjálfskipting í stýri.

Þá er nýr GLK sparneytnari, betur búinn og öflugri en nokkru sinni. Dráttargetan er nú 2.400 kg og alls 400 kg meiri en í eldri gerðinni. Meðaleyðsla GLK er 6,5 lítrar á hundraðið í blönduðum akstri, sem er enn minni eyðsla en í eldri gerðinni sem lenti í verðlaunasæti bæði 2011 og 2012 í sínum flokki í sparaksturskeppni Atlantsolíu.

Verð á nýjum GLK er frá 6.890.000 kr. Fulltrúi frá Mercedes-Benz í Þýskalandi verður á staðnum ásamt starfsfólki Öskju og veitir góð ráð um aukabúnað, varahluti og viðhald. Þá gefst gestum færi á svara nokkrum laufléttum spurningun og í verðlaun verða helgarafnot af nýjum GLK. Frumsýningin er kl. 12-16 nk. laugardag í Öskju að Krókhálsi 11.

Verið velkomin að kíkja við,


Með kveðju

Starfsfólk Öskju