Vantar upplýsingar um 220SB 1964

#1
Þannig er mál með vexti að pabbi sá þennan
http://bilasolur.is/CarDetails.aspx?bid ... &schpage=1
á ferð sinni um Borgarnes um daginn og er búinn að vera alveg viðhorfslaus, ég skoðaði hann svo létt á leið minni vestur í Flatey um helgina og sé ekki betur en að hann sé nokkuð góður(miðað við verð).
Veit að hann er fluttur inn 13.05.2002 en finn ekkert meira um hann, er með voða takmarkaðan aðgang að bifreiðaskrá í vinnunni.

Allt info vel þegið.


Finnbogi Ágústsson
W201 M103 3.0 BSK Elskan
W109 M116 3.5 SSK Viðhaldið

Re: Vantar upplýsingar um 220SB 1964

#2
Ég þekki þennan bíl nú ekki mjög vel, en hann lítur ágætlega út á þeim myndum sem maður hefur séð af honum.

[img]http://bilasolur.is/CarImage.aspx?s=36& ... 3253&w=600[/img]

Hann hefur greinilega verið fluttur inn frá Bandaríkjunum, en maður sér það á stuðaranum og litlu stefnuljósunum (brjóstunum) að framan. Mér sýnist hann líka hafa verið gerður upp, sprautaður og sett í hann ný teppi. Ég myndi hafa í huga hvort þetta sé upprunalegi liturinn og skoða vel uppgerðina. Viðurinn í mælaborðinu virkar eins og hann hafa verið pússaður og lakkaður, en hefur verð vel að því staðið? Það sést ekki nægilega vel á myndunum, en áferðin virkar dálítið skrítin en það er kannski bara myndin. Hvaða vírar eru þetta annars sem lafa undan mælaborðinu?

[img]http://bilasolur.is/CarImage.aspx?s=36& ... 3248&w=600[/img]

Mér finnst dálítið fráhrindandi að sjá þessa M110 vél þarna undir húddinu; vatnskassi mixaður í ásamt forðabúrinu, rafgeymirinn hefur verið fluttur yfir og pokinn fyrir rúðuvökvann skilinn eftir, en mótorinn sjálfur er greinilega úr töluvert yngri W116 bíl.

[img]http://bilasolur.is/CarImage.aspx?s=36& ... 3250&w=600[/img]

Auðvitað er þetta skemmtilegast þegar þetta er eins og það á að vera.

Eins og ég sagði, þá hef ég aðeins séð myndir af bílnum þannig að mig vantar alveg tilfinninguna sem maður fær fyrir þegar maður hefur bíl fyrir framan sig. Þetta er kannski hinn besti bíll, en ég myndi bara skoða hann mjög vel ef ég væri að spá í kaup.
Sveinn