Leó M Jónsson véltæknifræðingur látinn

#1
Leó M Jónsson véltæknifræðingur er látinn 69 ára að aldri.
Er það mikill sjónarsviftir af honum fyrir hinn allmenna bílaáhugamann, þar sem annan eins gagnabánka og hann hefur um tæknimál bíla og annað sem þeym viðkemur hef ég ekki séð hér á landi að minsta kosti, saman ber heimasíðu hans http://leoemm.com/" onclick="window.open(this.href);return false; , skrif í morgunblaðið og ritstjóri eina alminnilega bílablaðs sem komið hefur út hér á landi, 15 árgángar, þar af var hann orðin ritstjóri 1988 þegar ég gerðist fyrst áskrifandi, allt til enda blaðsins 1997.
Á ég öll tölublöðin frá '88 ennþá og held mikið uppá, gaman og fróðlegt að glugga í þau.
Ber ég mikla virðingu fyrir honum og því sem hann hefur gefið af sér fyrir hinn allmenna leikmann sem vill gera við sjálfur.
Vonandi verður heimasíðan leoemm.com áfram opin.
Votta ég aðstandendum hans samúðarkveðjur. Blessuð sé minníng hans.
Ragnar Tryggvason


Mercedes Benz s500, w140 '93
Mercedes Benz 280e w123 '83
Mercedes Benz 280s, w126 '85
Mercedes Benz 280se, w126 '83 varahlutab.
Mercedes Benz 230e w123 '77 Rip
Chevrolet Tahoe 5.7, v8 '96 Til sölu
Chevrolet Nova 5.7 v8 '77 seldur og Rip
Ford Explorer 4.0, v6 '05 seldur
Ford Transit connect 1.8 '05
Ford Escort '97 Til sölu
Nissan 350z, v6 '07
Nissan maxima 3.0, v6 '87
Pontiac Grand am 3.4 v6 '99 Rip
Pontiac 6000ste 2.8,v6 '87
Volvo 740 GL '86
Honda Shadow Aero 750 '07
Kawasaki Ninja 900gpz '85
Susuki RM-Z 250 K7 '07 til sölu
Massy Ferguson 135 '79 í uppgerð. RagnART 8995437

Re: Leó M Jónsson véltæknifræðingur látinn

#5
og þegar þú talar um mal í kattardýrum, þá fara sumir okkar að hugsa um hægagangshljóð í Jagúar...

En Leó M. Jónsson var mikill hugsuður og með greinandi huga sem hann notaði á óeigingjarnan hátt til hagsbóta fyrir marga.

Blessuð sé minning hans.
Garðar Lárusson
s. 892-0084

500SE 1989
280E 1980
290GD TDI 1987
280GE 1987

Re: Leó M Jónsson véltæknifræðingur látinn

#6
Ég talaði oft við Leó sem gutti. Og hafði altaf gaman af honum. Mér fanst það altaf svakalega töff að sjá hann geyma mótorhjólið sitt inná gangi í húsinu sínu. Svo má ekki gleyma risa bílskúrnum sem að hann var með (Kúluhúsið) Einhverntíman spurði ég hann afhverju hann væri með svona skrítinn bílskúr. Þá sagði. Sko þetta átti nú að verða einbýlishús en endaði sem bílskúr. Og aldrei gleymi ég því þegar pabbi keypti tjónaðann daihatsu charade með kýr auga af honum. Ég ætlaði altaf að fá mér svona bíl. Leó var snilldar maður og verst að maður skuli bara hafa þekkt hann þegar maður var polli. Þá hafði maður ekkert vit á bílum eða vélum. Hann var góður maður og algjör snillingur. Blessuð sé minning hans.
Kveðja Gísli.

Nissan Patrol 94 38" TRÖLLI
Nissan patrol 98 33 heimilis bíllinn
Dodge ram 5.9 cummins 93 HRÚTURINN
DODGE RAM HEMI MAGNUM 03 (djásnið) seldur :(
Benz 300D 1989 því miður seldur og og sé mikið eftir honum:(
Benz 190 1985 R.I.P

Re: Leó M Jónsson véltæknifræðingur látinn

#7
Hann var alveg merkilegur náungi. Ég var í svolitlum samskiptum við hann á netinu og sendi honum email ef ég þurfti að fá að vita eitthvað. Alltaf ljúfur og notalegur í svörum og vissi bókstaflega alla hluti.

Blessuð sé minning hans .
M.B. 270E seldur
M.B. 320 seldur
VW Carawelle ekinn 320.000 gefinn
M.B. árgerð 1974 húsbíll
Citroen C5 árg 2007 seldur
Mitsubishi Galant skúrskraut
Peugeot 5008