Re: Ný og eldri Classic blöð til sölu

#3
Gaman að þið getið fengið þau til að selja meðan sumir hérna sem eiga að fá þessi blöð með klúbbaðildinni fá ekki að sjá tangur né tetur af sínum blöðum... þá er ég að tala um sjálfan mig, á því rúmlega ári síðan ég borgaði fyrir 2010 og 2011 aðildina hef ég ekki fengið eitt einasta blað í lúguna hjá mér :)

kveðja
Björgvin Pétursson
280 SEL W126
E420 W124
230CE W123
230C W123
S320 W140
190E 2.6 W201
C36 AMG W202
C320 Brabus W203
E320 W124
230CE W124

http://www.cardomain.com/ride/3891358/1 ... nz-e-class" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Ný og eldri Classic blöð til sölu

#4
Klúbburinn kaupir sérstaklega aukablöð til þess að selja og til að hafa fyrir þá sem ekki hafa fengið þau á meðan þeir áttu rétt á því. Því geta þeir sem ekki hafa fengið blöð á meðan þeir áttu rétt á því, haft t.d. samband við Björgin B. Það getur bara stundum verið svolítið erfitt að fá þá þarna úti til að koma nýrri áskrift í gagnið :roll: ...og biðjum við velvirðingar á því.

Það er reyndar verið að vinna í því að koma þessum blöðum öllum á einn stað, og því eru ekki öll eldri upplög aðgengileg í augnablikinu. Klúbburinn hefur bara ekki hingað til haft geymslurými á einum stað fyrir þetta, en við eigum blöð nokkur ár aftur í tímann.

Ég vil benda þeim sem hafa áhuga að þetta er mjög eiguleg blöð, og hvert eintak myndi sennilega kosta svona 2000kr í bókabúð hér á landi. Að geta keypt eldri blöð á 500kr eða 1000kr er því held ég mjög gott verð :wink:
Sveinn

Re: Ný og eldri Classic blöð til sölu

#6
Hvað er að frétta af þessu blaði sem maður á að fá gekk í klubbinn seint á árinu 2011
og hef enn ekkert blað fengið.Svo hef ég líka áhuga að kaupa nokkur eldri blöð,hvernig snýr maður sér í því.
Með kveðju

Grétar
Grétar Karlsson
s.6947259

Mercedes Benz 280se 1984
Mercedes Benz E280 1993
Mercedes Benz E220 1993
Izuzu Trooper 98
Toyota Avensis 98