Re: G-vagn auglýstur til sölu á bland.is

#2
Fyrir áhugasama...

Þetta er þessi bíll:
[img]http://fornbilar.stjarna.is/img/g/gs13.jpg[/img]

Hringdi í þetta símanúmer sem er á blandinu. Það var ekki eigandinn sem var til svara, en hann lýsti þessu þannig að vatnskassinn hefði verið bilaður (er ekki í bílnum) ásamt einhverju öðru. Bíllinn hafi síðan staðið fyrir utan verkstæði þegar unnin voru á honum skemmdaverk, t.d. brotnar rúður. Búið er að líma plast fyrir gluggana, en það er rifnað frá. Ekki veit ég hvað hann er búinn að vera ógangfær lengi, en það er sennilega mjög lengi.

Fór og skoðaði bílinn og hann er mjög ryðgaður og orðinn veðraður að innan. Hann er fullur af drasli með tréstýri og það er eins og hundur hafi átt heimili í framsætinu.

Mér skildist að gripurinn verði ekki gefinn og kaupverðið sé eitthvað nálægt 400þús.

Bíllinn stendur í Vogahverfinu fyrir aftan W107 SLC bíl í álíka döpru ástandi. Verðið á þeim bíl á bilasolur.is miðað við ástand er í svipuðu hlutfalli og verðlagningin á þessum G-Benz miðað við ástand.
Sveinn

Re: G-vagn auglýstur til sölu á bland.is

#4
Það væri gaman að taka einn svona að sér en ég er ekki að fara að borga 400k fyrir líkið af bílnum :shock:
Aron G

arg10@hi.is
Mazda 6 2.0 ´03 UT445 (frúarbíllinn)
SY Musso 2.9 TD ´98 YY150 35" Einræðisherran
Toyota Avensis 1.8 ´99 Blár AY836 seldur
Menzedes Benz 230E ´91 w124 Svatur/grár SO884 ek 314 þús (Blakkurinn) Seldur
Merzedes Benz 190E (2.0) 17.2.1983 nr7133 af w201 Gull HP685 Seldur
Merzedes Benz 300CE 1989 vínrauði YT228 (Seldur)

Merzedes Benz.......... því annað er bara fúsk