Vandræði með pinna í bremsudælur að aftann í W210-E class

#1
Jæja ég ætlaði að fá mér nýja klossa að aftan í Mercedes-Benz E 200. 1998 W210-E class, og við athugun kom í ljós að pinninn sem gengur í gegnum aftur dæluna og klossana er fastur „gróinn“ fastur.
Um einn pinna er að ræða og hann er settur inn í dæluna að innanverðu, og er örmjór í endann þar sem hann fer út úr dælunni að utanverðu.
Innan við pinnann er spenna (plata) og hún er laus og ekki orsökin fyrir festunni, heldur frekar er hann fastur í götunum sem hann gengur í gegnum í dælunni.
Þannig að ég vildi frekar spyrja ykkur ráða, frekar en að fara að berja þennan pinna til óbóta. :idea:


Sigurður Grétar
Simi:691-5764

Mercedes-Benz E-Class (1999) .
M.benz C220 my 93 til seldur.
Nissan navara my 04
Oldsmobile 1988
og nokkrir traktorar

Re: Vandræði með pinna í bremsudælur að aftann í W210-E cla

#2
Ef þú hegur aðgang í logsuðu græjur hitaðu þetta þá upp, annars er bara að úða ryðlosandi efni á þetta og vona að það geri eitthvað gagn.

Ég hef alltaf notast við 4 mm úrrek og hamar, pinnarnir losna alltaf við það á endanum.
Hlynur S. - - - Sími: 869-6226

Mercedes Benz - E220
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, Eilfíðarverkefni
\\\Bón, Mössun, Alþrif
Fyrri bílar: Toyota Corolla Si, 7x W124, Justy, Volvo.
amigo.is

Re: Vandræði með pinna í bremsudælur að aftann í W210-E cla

#3
Það má ekkert hita þetta og hér er ekkert annað en ofbeldi sem dugar... Það virkar best að banka ögn með hamri á dæluna þar sem pinninn fer í gegn um hana (samt ekki of fast) og nota svo GOTT vandað úrrek til að slá hann úr þegar aðeins er farið að losna um hann... Ef hann þolir ekki álagið að þá er til nýr hjá Bíla-Doktornum á brandaragjaldi.
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)

Re: Vandræði með pinna í bremsudælur að aftann í W210-E cla

#4
Pinninn er 80 m/m langur 6 m/m en er síðan rendur niður í 4 m/m í endan sem fer í síðasta sætið. Það er bara þessi 4 m/m endi sem er hægt að slá á, en ég efast um að þessi pinni þoli nein ofbeldisverk þarna í endan.
Er kominn með einhverja mega ryðlosunar olíu í málið og vona svo að þetta gangi upp að vera bara mjúkur á því við eðalvagninn.
Sigurður Grétar
Simi:691-5764

Mercedes-Benz E-Class (1999) .
M.benz C220 my 93 til seldur.
Nissan navara my 04
Oldsmobile 1988
og nokkrir traktorar

Re: Vandræði með pinna í bremsudælur að aftann í W210-E cla

#5
SGM skrifaði:Pinninn er 80 m/m langur 6 m/m en er síðan rendur niður í 4 m/m í endan sem fer í síðasta sætið. Það er bara þessi 4 m/m endi sem er hægt að slá á, en ég efast um að þessi pinni þoli nein ofbeldisverk þarna í endan.
Er kominn með einhverja mega ryðlosunar olíu í málið og vona svo að þetta gangi upp að vera bara mjúkur á því við eðalvagninn.
Já, ryðlosunar olían þarf náttúrulega smá tíma til að virka.
Hlynur S. - - - Sími: 869-6226

Mercedes Benz - E220
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, Eilfíðarverkefni
\\\Bón, Mössun, Alþrif
Fyrri bílar: Toyota Corolla Si, 7x W124, Justy, Volvo.
amigo.is

Re: Vandræði með pinna í bremsudælur að aftann í W210-E cla

#7
Ég setti „Prolong SPL 100“ sumir hafa nánast farið með trúarjátninguna í að lofa þetta efni, en ég hef efasemdir um það en vil samt prófa það. Er búin að setja efnið þrisvar á splittin á síðustu ca. 10 tímum, væri alveg til í að fá upplýsingar um betri eða önnur efni ef þið eruð með þau.
Takk Magnús, það verður kannski endirinn að taka dæluna úr, ég var að vona að ég nái þessu "heilu" og geti keypt nía pinna án þess að taka dælurnar undan.
En ég reyni eitthvað að juggast í þessu næstu daga því bíllinn er geymdur á lyftu og er ekki að fara neitt hann getur verið á lyftunni til vors eða fram á haust,,,þess vegna.
Sigurður Grétar
Simi:691-5764

Mercedes-Benz E-Class (1999) .
M.benz C220 my 93 til seldur.
Nissan navara my 04
Oldsmobile 1988
og nokkrir traktorar
cron