Smurþrýstings bömmer í 300D

#1
Er með 92 árg. af 300D w124.
Fór með greyið í smurningu um daginn og 2-3 dögum seinna var ég á ferðinni og tók eftir því að smurþrýstingurinn stóð í núlli. Fór beinustu leið með bílinn heim.
Ég prufaði að gefa honum hressilega inn og þá náði ég mælinum alveg upp í 3 en um leið og ég sló af þá datt hann beina leið í 0 aftur.
Er búinn að fara víða að leita ráða. Einn sagði að sían gæti verið stífluð eða hreinlega gölluð (flúnku ný sía) og annar sagði að rörið sem skrúfast niður í miðja síuna gæti verið stíflað. Ég setti nýja síu í og skoðaði rörið í leiðinni en það er sama sagan.
Mig hryllir við tilhugsunina að fara með bílinn á verkstæði og borga tugi þúsunda ef þetta er eitthvað sem maður gæti reddað sjálfur.
Allar hugmyndir vel þegnar.

-R


Re: Smurþrýstings bömmer í 300D

#3
Ég hef lent í því að 5 cyl 300D kveikti smurljós c 1.500 km eftir síðustu smurningu.
Ljósið hvarf á þokkalegum snúning. Olíumagn og hiti voru eðlileg. Fyrstu viðbrögð voru að tappa af smurolíunni til að kanna hvort þar væri svarf. En allt var ok.
Það kom hinsvegar í ljós að 1.500 Km smursían var brotin í tvennt!

Þetta var e-h aftermarket sía af OLÍS smurstöð.

Gamall díselmelur ráðlagði mér að kaupa alltaf síur frá MANN eða KNEICHT og forðast síur af óræðum uppruna á smurstöðvum. Með réttri síu slökknaði á smurljósinu og það ekki sést árum saman nema við ræsingu.

Núorðið skipti ég sjálfur um olíu og síu og vinn allt verkið ofanfrá með sogdælu.
Svarta smurolían fer svo beint á eldsneytistankinn......

Re: Smurþrýstings bömmer í 300D

#6
Ég veit það að ég myndi tappa undan honum með það sama og skoða smursíunna skypta henni út hið sama ef ég sæi eithvað óeðlilegt.

Kostar mun minna að kaupa einhverja 6 lítra af smurolíu og síu heldur enn upptekt ef hann rífur sig fastan !
w124 230 MY:91
Toyota hilux my:88
og einhverjar fleyri dósir...

Re: Smurþrýstings bömmer í 300D

#7
öddi.. skrifaði:Ég veit það að ég myndi tappa undan honum með það sama og skoða smursíunna skypta henni út hið sama ef ég sæi eithvað óeðlilegt.

Kostar mun minna að kaupa einhverja 6 lítra af smurolíu og síu heldur enn upptekt ef hann rífur sig fastan !
Hef heyrt að það megi ekki nota Fram síur í Range Rover. Hann nær ekki að halda smurþrýsting með þeim. Möguleiki að það sé eitthvað svipað á ferð hér.
Jón Ketilsson S. 8662773

Að eiga Benz eru trúarbrögð.

Re: Smurþrýstings bömmer í 300D

#8
BaraBenz skrifaði:
öddi.. skrifaði:Ég veit það að ég myndi tappa undan honum með það sama og skoða smursíunna skypta henni út hið sama ef ég sæi eithvað óeðlilegt.

Kostar mun minna að kaupa einhverja 6 lítra af smurolíu og síu heldur enn upptekt ef hann rífur sig fastan !
Hef heyrt að það megi ekki nota Fram síur í Range Rover. Hann nær ekki að halda smurþrýsting með þeim. Möguleiki að það sé eitthvað svipað á ferð hér.
Samkvæmt vel virtum bifvélavirkja hér á spjallinu á ekki að nota Fram síur yfir höfuð.

Re: Smurþrýstings bömmer í 300D

#9
original Benz síur eru ekki það dýrar að það borgi sig að kaupa eh annað, amk fyrir smurolíuna, skítt með loft og eldsneyti. Sá athyglisverða grein sem var um prófanir á smursíum í USA og eftir að hafa lesið það þá hef ég ekki látið Fram koma nærri neinu sem ég held gangandi og eru yfir 300 tæki í þeim flota.
Bjarni Þorgilsson
S 772-7722