Ráðgátan

#1
sælir spjallverjar er með Benz 190 E 2,0 sem vill ekki í gáng. hann fær bensín loft neista á að vera á réttum tíma þjappar vel (finnst mér) kertin eru ný kveikjulok og hamar nýtt háspennukefli nýtt þráður frá kefli að kveikjuloki kertaþræðir eiga að vera góðir hreinsaði innspítinguna setti hosuna á milli nýja hann er búinn að standa svolítið hreinsaði tánk og lagnir setti nýtt bensín. fór svo yfir allt aftur ekkert sem ég sé að bíllin var keyrður inní skúr þannig að hann var ekki svona er eitthvað sem ykkur dettur í hug ????

kv Einn ráðþrota :)
Seinast breytt af doncarlo þann 10 Jún 2010, 23:49, breytt 1 sinni alls.


W201 190E my 86 Gullið

Re: Ráðgátan

#3
Taktu kertin úr,dustaðu rykið af gömlu sm.olíu könnunni sem er upp í hillu,og tvö til þrjú slög af sm.olíu eða sjálfsk.olíu inná cylendrana.Labbaðu einn hring í kringum gripinn (rangsælis) sparkaðu í dekkin,skrúfaðu kertin aftur í,teygðu svo hendina inn um hliðarrúðunna og trektu óhræddur í gang,loftaðu samt vel út,það kemur smá bræla....fyrst. :wink: Gangi þér vel.

Re: Ráðgátan

#4
Er búinn að prufa að setja olíu inná og sparka í dekkin ;)
vísbending: hann rennbleitir kertin en þegar ég aftengdi vagum punginn sem stýrir bakflæðinu þá fór gamli að hósta.... semsagt fær of mikið gas. á mynd af þessum pung (hvernig setur mar myndir hérna inn???) á einhver svona fyrir mig..

Hann fær neista prufaði það með að legga jörð fór yfir tímann aftur núna í kvöld hann er réttur það fer ekki á milli mála að hann fékk nægt bensín meira segja of mikið....
á þessi pungur ekki að stjórnast af sogi ????

kv
W201 190E my 86 Gullið

Re: Ráðgátan

#5
Sogið jafnar bara sveiflur í honum hann virkar hvort sem það er tengt eður ei. Hann getur hins vegar verið bilaður.
Þröstur Reynisson 893-4172
tr105@outlook.com

600SEL '91 ekinn 195000
300E 4Matic '88 ekinn 300000
240D '83 ekinn 160000 "Hjólið"
350SE '73 ekinn 175000 Gullvagninn.
280SE '77 ekinn 150000

Re: Ráðgátan

#8
Hann er bara yfirfullur hjá þér og bensínið er það sem kaldstartspíssinn er búinn að vera að moka inn á vélina. Aftengdu kaldstartspíssinn, startaðu honum í 15 sek án kerta, ný kerti, stattu hann í botni og startaðu.
Bjarni Þorgilsson
S 772-7722

Re: Ráðgátan

#10
M-B-C skrifaði:Taktu kertin úr,dustaðu rykið af gömlu sm.olíu könnunni sem er upp í hillu,og tvö til þrjú slög af sm.olíu eða sjálfsk.olíu inná cylendrana.Labbaðu einn hring í kringum gripinn (rangsælis) sparkaðu í dekkin,skrúfaðu kertin aftur í,teygðu svo hendina inn um hliðarrúðunna og trektu óhræddur í gang,loftaðu samt vel út,það kemur smá bræla....fyrst. :wink: Gangi þér vel.
Það er mikilvægt að labba réttsælis í kringum hann. Algert beisikk atriði eiginlega..
cron