Ford Mustang 7.0 - 1972

#1
Langt aftur í fyrra lífi átti ég Mustang '72. Þetta var um 1992. Seldi hann þegar ég flutti til London í ársbyrjun 1993. Hann var steingrár, sanseraður. Loftinntökin í húddinu voru gullsanseruð. Hann var rauðvínilaður að innan með svart mælaborð. Upphaflegur eigandi var Gulli í Karnabæ, eða svo var mér sagt.

Veit einhver hvað varð um þennan bíl? Þetta var 429 (ekki orginal samt) og ekkert allt of mikið um þessa bíla, svo ég vona að fólk kannist við gripinn. Ég vona að hann hafi lent í góðum höndum og verið gerður upp, frekar en að vera nauðgað til dauða í einhverri kvartmílunni. Ég byrjaði á því að óhækka hann að aftan (var búið að hækka en ég gerði hann orginal aftur) og ég setti undir hann upphaflegu Mustang felgurnar. Hefði gert meira, en ég fór og hann var seldur.

Ég á ekki margar myndir af honum, en get hent einhverju hérna inn þegar ég hef tíma ef fólk hefur áhuga.


Bíllinn minn er þarna einhversstaðar. Þarf bara að finna hann.

Re: Ford Mustang 7.0 - 1972 -- AX-110

#4
Smá saga af mínu tímabili í lífi bílsins.

Ég keypti hann 1991. Hann var í þokkalegu standi. Keyrði hann eitthvað yfir sumarið. Leigði skúr yfir veturinn en keyrði hann svo aftur sumarið 1992. Seldi hann aumingja. Gjaldþrota svindlari lét mig hafa skuldabréf. Eyddi 2-3 mánuðum í að reyna að fá borgað. Það gekk ekkert, svo ég tók bílinn. Gallinn var að þá var búið að selja hann aftur. Eftir mikið vesen, fékk ég hann loksins aftur og setti á sölu. Minnir að hann hafi selst í upphafi árs 1993. Sem betur fer var hann nógu fallegur til að fá að standa inni. Álfelgurnar sem ég tók undan honum stóðu á annarri bílasölu í einhvern tima en seldust ekki því þær voru misstórar. Fjórar eins og jeppaliðið hefði tekið þær eins og skot. Þegar ég kom að sækja þær vorið '93 voru þær horfnar.

Ég lagaði lakkið eitthvað og keypti nýjar Mustang felgur frá USA. Lækkaði hann að aftan. Var að kíkja á netinu og sá að hann hefur verið sprautaður svart-blár eftir að ég seldi hann. Ég hef ekki hugmynd um hver setti sjö lítra vélina í hann, en það var fyrir 1991.

Stundum sá ég eftir að hafa selt hann, en ég var að fara út að læra. Mig vantaði allan þann pening sem ég gat náð mér í og hafði ekki efni á að leigja skúr. Láta hann standa úti var heldur ekki möguleiki, því þá hefði hann rotnað.
Bíllinn minn er þarna einhversstaðar. Þarf bara að finna hann.

Re: Ford Mustang 7.0 - 1972

#5
Skv.umferðastofu var þessi gripur skoðaður í fyrra. Væntanlega ennþá í umferð þá :) Viltu ekki láta fletta honum bara upp eftir númerinu og hringja í eigandann? fá að skoða.
__________________________
VW Bjalla 1963
M.Benz 280SE 1971
VW Microbus 1975
M.Benz 450SEL 1975
VW Caravelle VR6 1999
Alfa Romeo 156 1999
BMW 320 1999


VW Bjalla 1963
cron