#2
Sæll og velkominn á spjallið,
það fyrsta sem mér dettur í hug í þínum málum er að skipta út konunni og halda Benzanum,
Benzinn er örugglega ódýrari í rekstri fyrir háskólanema heldur en eiginkona :lol:

Nei nei, bara að stríða, ekki skipta frúnni út þá lendir bara einhver annar í því að sitja uppi með hana :(

En án gríns þá áttu alla mína samúð með að þurfa að selja Benzann,
þú færð ekki betri bíl fyrir peninginn í þessum verðflokk.


Sigurður HAMAR Pétursson 897-5576
Mercedes Benz 300E 4Matic '89
BMW 225xe

#7
Velkominn á spjallið.

Leitt að heyra að frúin skuli ekki vera hrifinn af þessu eintaki af W124 því að bíllinn virðist vera algjör gullmoli :?

Þekki reyndar þitt vandamál að vissu leyti, mín frú vill ekki sjá G-Benz (sem er auðvitað bara skrýtið :lol: ) svo að þú átt samúð mína alla :wink:

Gangi þér annars vel að selja gripinn.
Benedikt Hans Rúnarsson

#8
Benni skrifaði:
Þekki reyndar þitt vandamál að vissu leyti, mín frú vill ekki sjá G-Benz (sem er auðvitað bara skrýtið :lol: ) svo að þú átt samúð mína alla :wink:
ef eg væri með stelpu sem mundi segja við mig annahvort hun eða bilinn fer, þá get eg sagt strax ykkur að ég mundi sakna hennar af og til :lol:
Sergio M.

#9
hahaha fyrr má nú vera kúgaður :fyndid:


;)


En afhverju þolir hún ekki bílinn?
Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin