en og svo margir stjörnumenn vita þá velti vinur minn Benzanum minum sem mér þykir afskaplega leitt þar sem mér þykir allveg afskapleg vænt um umtalað ökutæki..
eftir veltuna, sem átti sér stað fyrir einum mánuði og 9dögum síðan tæplega 2kilometrum fyrir utan stykkishólm. þá var bíllinn fluttur til hafnafjarðar í geymslu þar til að málin myndu skýrast betur og það væri buið að tjóns meta bílinn..
tjónið var metið yfir verð bílsins. sem kom mér alls ekkert á óvart þar sem bíllinn er töluvert mikið skemdur. og ég veit það sjálfur að það kostar rétt undir 3miljónum að laga hann svo hann verði aftur eins og nýr..
og ef ég tel það upp svona til gaman hvað þyrfti að skipta um eða laga er.
bæði frammbrettin, allar hurðar, bæði afturbrettin, toppurinn, skottlokið, vinstra afturljósið, bremsuljósið í skottlokinu, farþega sætið+airbag í sætinu, allar airbag gardinurnar, áklæðið í toppnum, flest alla lista í inréttingu, lista að utan og hurða handföng, öskubakkann, höfuðpúðana í aftursætinu, hilluna sem er undir afturrúðuni, speygilinn á hægri hurðini, 3hliðarrúður, afturrúðu, frammrúðu, sílsana báðum megin, airbag skynjara í hliðum, hjólastellið vinstra meginn að aftan, hjólastellið vinstra megin að framan, pönnu á skiptingu, pústkerfi og svo þarf að setja þetta allt saman og græja og gera og svo loksins mála kvikindið allt aftur. og takið eftir.. þetta er bara það sem ég sá að væri ónýtt/skemmt þegar ég skoðaði bilinn fyrir vestan áður en hann var sendur suður...
okei.. ég er buinn að vera í stöðugu sambandi við sjóva.. og þeir segjast allt fyrir mig gera.. borga bílinn út og allt flott maður. allveg æðislegt.. og allt frábært.. svo hringir í mig þessi tjónaskoðunar kall og bauð mér 1890þús í bílinn og hann virkilega hélt að hann væri að vera voða sanngjarn..
ég bara gat ekki annað en sprungið úr hlátri, enda hélt ég að manngreyið væri að grínast. en það var fljótt að faraaf mér glottið þegar hann sagðist ekki að vera grínast..
ég sagði við manninn að það væri lán á bílnum sem stæði nuna í 2,8m (já það er buið að hækka um 400þusund) og það kæmi ekki til mála að ég myndi sytja eftir með milljón í lán af bíl sem væri ónytur og ég hefði ekki einusinni fengið heiðurinn á að skemma sjálfur. þannig að við fórum að semja og ég fór á bílasölur og fékk verðmat á bílinn á 3bílasölum. og allir þeir löggildu bílasalar sem ég ræddi við voru sammála um það að þessi bíll væri að fara sirka 2,7/2,8miljón í staðgreyðsluverði og taka þyrfti tilitt til þess hvað bíllinn væri vel með farinn og væri tiltörulega ný málaður. og væri hlaðinn aukabunaði..
oki þegar þessi mann fíla hjá sjóvá var loksins buinn að fá það staðfest að þetta væri (W211) boddy en ekki (W210) þá hækkaði hann sig upp í 2,2mill. og harðneitaði að fara hærra en það vegna þess að bíllinn væri ekin svo mikið. jæja eftir 1viku og buinn að tapa mér á þennan fyrrnefnda tjónamann 3sinnum og buinn að fá mér lögfræðing og allan pakkann, þá fór hann upp í 2,3 og 75þúsund og ekki fimmeiring hærra en það. og ef ég myndi ekki taka því þegjandi og hljóðalaust þá myndi hann bara gefa skít í mig og ég myndi sytja uppi með bílinn(mér skyldist þetta svona á honum, en hann vildi ekki viðurkenna að hafa sagt þetta við mig við föður minn né villhjálm lögfræðing)
jæja.. ég var kominn meðgrátt hár af reiði og buinn að gefa upp alla von þegar mér datt í hug að tala við yfirmann tjónaskoðunar mannsins. og sagði honum hvað mér fyndist um málið og að mér þætti frekar hart að það væri bara gefið skít í þau gögn sem ég laggði framm um verð á bílnum og að það væri stórundarlegt að geta ekki einusinni fengið lánið borgað niður af bílnum enda spurði ég hann, tilhvers er maður að kaskótryggja bíl ef maður fær hann ekki full bættann... og ég var ekki einusinni að byðja um að allt lánið yrði greitt niður.. ég myndi sjálfur borga 150þús áfram af því.. (ég var að byðja um 2,7fyrir bílinn)
þessi yfirmaður hjá sjóva var mjög kurteis og tók allt til greyna sem ég hafði að segja og virtist hlusta á mig, annað en hitt kvikindið sem tjónaskoðaði bílinn og sá um málið í fyrstu..
jæja svo var hringt í mig í dag..
Bíllinn fer á verkstæði í næstu viku. sjóvá borgar auðvitað viðgerðina, hvað sem hun kostar....
en nuna er spurning.. AFHVERJU Í FJANDANUM BORGA ÞEIR EKKI BARA 2,7 AF LÁNINU EINS OG 'EG BAÐ UM! Í STAÐ AÐ GERA VIÐ BILINN FYRIR MIKIÐ MEIRI PENING?????
eins og konan sagði við mig áðan "you where ment to be" hehe..
allavegana.. þá er ég steinhissa á þessu öllu saman og veit ekki hvort ég eigi að brosa, hlægja eða gráta mig í svefn