er með einn gamlan húsbíl mep 2.4 dísel hann er 84 módel og ekinn um 100þús.
vélinn dettur í gang og skilar aflinu vel en mér finnst hún nú aðeins of hávær
gamall kall sagði mér að setja smá sjálfskiptivökva á mótorinn
hefur einhvber hér heyrt annað eins
ætti ég að profa þetta eða sætta mig við hávaða ganginn
Re: 307d
#4Já það er bara svona dúndur power í þessu dóti.hr.annar skrifaði:er með einn gamlan húsbíl mep 2.4 dísel hann er 84 módel og ekinn um 100þús.
vélinn dettur í gang og skilar aflinu vel en mér finnst hún nú aðeins of hávær
gamall kall sagði mér að setja smá sjálfskiptivökva á mótorinn
hefur einhvber hér heyrt annað eins
ætti ég að profa þetta eða sætta mig við hávaða ganginn
w463 G300td 2000
w111 220 SEb/C 1965
w111 220 SEb/C 1965
#6
bara sjálfskipti vökva á þetta allt saman, í hráolíuna, og í smurolíuna. allt í lagi að segja 0.5 - 1 L í smurolíuna. En slurk í hráolíuna af og til svona.
#8
Sjálfskiptivökvi inniheldur fullt af hreinsiefnum og mjög feitum smurefnum sem eru mjög æskileg fyrir endingu og hljóðdeyfingu í eldri gerðum dísilkerfa. Það er því mjög gott fyrir bíla sem eru með olíuverk upp á gamla móðinn að setja dexron II eða dexron III vökva út í dísilolíuna öðru hvoru. 0,5 til 1 líter í áfyllingu svona annað slagið gerir bílnum bara gott.
Hitt er svo annað mál hvort að ekki sé rétt að kippa bara úr honum spíssunum og henda þeim í stillingu. Gæti verið farinn að falla á þeim þrýstingurinn bara vegna þess hve bílinn er orðin gamall. Inni í spíssinum er stífur gormur og allir gormar hafa það eðli að tapa ögn spennu sinni með árunum. Því gæti verið að það þyrfti að stilla þá. Yfirleitt lýsir rangur spíssaþrýstingur sér með skellóttum sprengingum eða svona hálfgerðu glamurhljóði sem stundum er kallað dísilskellir. Það er líka möguleiki að dísurnar í spíssunum séu farnar að gráta eins og það er kallað, en þá eru þær óþéttar og leka einum og einum dropa inn í forbrensluhólfið og sá dropi springur svo með miklum og háværum hvell í þjappslaginu og skapar líka svona dísilskelli. Þetta sést með því að setja þá í spíssaprófara.
Ekki vera hinsvegar að sulla sjálfskiptivökva í smurolíuna. Það er þekkt að sjálfskiptivökvi hafi losað of skart um sót í gömlum mótorum og hreinlega stíflað síuna sem síðan hefur leitt til úrbræðslu vélarinnar. Það er kanski í lagi að nota hann til að hreinsa vél þannig að það er settur á hana vökvinn ekið 50 km. og svo er skipt um olíu og síu, ekið 1000 km og skipt svo aftur um olíu og síu. Þetta er samt varasamt að gera á mjög gömlum vélum. Burtséð frá akstri.

Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757
Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann...

#10
Þær gerast nú ekki betri útskýringarnar enda doktorinn hér á ferð 
Aron G
arg10@hi.is
Mazda 6 2.0 ´03 UT445 (frúarbíllinn)
SY Musso 2.9 TD ´98 YY150 35" Einræðisherran
Toyota Avensis 1.8 ´99 Blár AY836 seldur
Menzedes Benz 230E ´91 w124 Svatur/grár SO884 ek 314 þús (Blakkurinn) Seldur
Merzedes Benz 190E (2.0) 17.2.1983 nr7133 af w201 Gull HP685 Seldur
Merzedes Benz 300CE 1989 vínrauði YT228 (Seldur)
Merzedes Benz.......... því annað er bara fúsk