Jæja, keypti fyrir stuttu svakalega heillegan w124 200D af litla frænda en vélin var komin á lokasprettinn þannig að ég ætla að setja í hann 250D 20 ventla vél sem ég fékk upp í Vöku. Ég ákvað að skoða mótorinn áður en ég set hann í þar sem ég veit lítið um hann. Það endaði með að ég reif hann alveg...
Ég lenti í þessu á C Benz sem ég átti. þá var inní þessu tannhjól úr plasti sem tennurnar hreinsuðust úr. Ég man nú reyndar ekki hvort þurrkan stoppaði alveg en hún hætti allavega að fara rétt upp í hornin á rúðunni.
Hefur einhver hérna reynslu af því að skipta út 200D og setja 250 eða 300D í staðinn? Til dæmis hvað þarf að flytja með úr húddinu og passar beinskiptingin beint á þessar vélar? Öll ráð vel þegin.