Síða 1 af 1

S E L D U R

Innsent: 10 Feb 2013, 20:23
frá Björgvin
Til sölu Audi A6 árg. 1999.
Ekinn 211.000 km.
2,4 vél 165 hö,
5 þrepa sjálfskiptur með handskipti möguleika.
Eyðir u.þ.b. 11 lítrum á 100 km í innnanbæjarakstri
Um 7.5 til 8 lítra utanbæjar.
Virkilega þéttur og góður bíll sem hefur fengið gott viðhald.

Blátt leður, viðarinnrétting, topplúga, rafmagn í rúðum og spegum, geislaspilari, 17" álfelgur á michelin heilsársdekkjum.

Það sem var búið að skipta um frá því í sumar:
- hjólalega hægra meginn að framan
- bremsuklossar og bremsudiskar að aftan
- demparar, demparapúðar og demparafestingar að aftan
- festingarnar fyrir bitann að aftan
- tímareimasett og vatnsdæla
- tvær spyrnur að framan

Skipt um í desember 2012
- Klossar að framan
- DIskar að framan
- Dælur yfirfarnar og ný þéttigúmmí sett í og stimplar hreinsaðir upp og yfirfarnir.

Bíllinn er nýskoðaður og með 13 miða. Endastafur 8.
Verð 790 þús stgr

Ásett verð í skiptum 990 þús.

Er að leita af góðum stationbíl, jeppa eða jeppling þar sem mig vantar skottið fyrir hundabúrið :)

Þurfa að vera 3 þriggja punkta belti afturí.

Kveðja