Síða 1 af 1
Mislitir ragmagnsvírar?
Innsent: 15 Júl 2014, 16:17
frá BaraBenz
Hvar er hægt að fá mislita rafmagnsvíra? T.d. 1,0 og 1,5 kvaðröt.
Sem sagt víra með t.d tveimur litum.
Ekkert til í Bílanaust, Aukaraf eða Bílaraf.
Kveðja, Jón
Re: Mislitir ragmagnsvírar?
Innsent: 27 Júl 2014, 18:58
frá Hlynzi
Prófaðu Íhluti, Miðbæjarradíó eða Reykjafell.
Hissa samt á því að þeir séu ekki til í stöðunum sem þú nefnir, t.d. hátalaravírar eru nú yfirleitt mislitir.
Re: Mislitir ragmagnsvírar?
Innsent: 27 Júl 2014, 21:55
frá BaraBenz
Íhlutir eiga þetta ekki heldur.
Reyni hina staðina. Ég er að tala um víra sem eru t.d. svartir/gráir, hvítir/bláir, rauður/gulur og s.fr.v.
Re: Mislitir ragmagnsvírar?
Innsent: 27 Júl 2014, 22:41
frá Hlynzi
BaraBenz skrifaði:Íhlutir eiga þetta ekki heldur.
Reyni hina staðina. Ég er að tala um víra sem eru t.d. svartir/gráir, hvítir/bláir, rauður/gulur og s.fr.v.
Já, mér datt það í hug. Í því tilfelli er ég ekki viss um að neinn eigi þetta, keyptu þér frekar signal kapal eða sambærilegt (10x 1q t.d.) og þá geturu afeinangrað hann og notað einstaka víra úr honum, þeir eru samt hugsanlega merktir bara með númerum,..en kemur niður á sama stað. Svo væri sniðugt að kaupa bara metra fjöldann sem þig vantar, ádrag í þeim litum sem þú villt merkja kapalinn með og setja svo allt í "sokk".

Hér er t.d. kapall sem ég gerði með svipaðri aðferð.

Svo gætiru keypt herpihólk (hitaádrag) eins og sést á þessari mynd..þ.e. þetta svarta, fæst í ýmsum litum og stærðum hjá íhlutum og miðbæjarradíó, ef þú ert mjög æstur í að hafa liti í staðinn fyrir tölur á köplunum.
Re: Mislitir ragmagnsvírar?
Innsent: 05 Sep 2015, 08:57
frá Haffij
Ef þú ert ekki búinn að redda þessu gæti verið sniðugt að kíkja í Wurth.
Re: Mislitir ragmagnsvírar?
Innsent: 06 Sep 2015, 11:32
frá BaraBenz
Búinn að tla við Wurth. Fyrst sögðu þeir að þeir ættu þetta bara á 100 metra rúllum.
Svo spurði é hverjir keyptu svona hjá þeim þá var þetta ekki til allt í einu.