Keypti diska á sínum tíma fyrir Hyundai Terracan "trukkinn" minn fyrir ca. 2 árum síðan að mig minnir. Voru að mig minnir lang ódýrastir en bíllinn bremsar sem skildi, ekkert vesen, og diskarnir bara í fínu standi svo að ég get alveg mælt með þeim.
Hafði áður keypt original búnað í Hyundai Santa Fe frá umboðinu (þá B&L/IH) og endingin þar var bara "la la"...
Hvaða vöru AB er að bjóða fyrir Benz veit ég ekki en ég hef svo sem alltaf fengið toppþjónustu hjá AB
