Síða 1 af 1

Felgur .is

Innsent: 27 Mar 2012, 17:25
frá tommi300ce
Fór með 18" felgu sem hafði dottið á gólfið úr ca.1,5 metra hæð .
Hún var með svona 2 - 3 mm dæld að innan verðu og alveg heil að öðru leiti .

Og hvað haldið að það hafi kostað ???


9.000 kr. TAKK FYRIR

Ég hef farið með felgur í áliðjuna sem eru miðjuskakkar ,þarf að sjóða í og eru eins og egg í laginu og hef ég aldrei borgað meira en 10 þús. kall

Þetta er bara helvitis okur og ekkert annað og þangað fer ég aldrei aftur og mæli með að fólk fari í áliðjuna frakar en þetta helvítis okur.

Re: Felgur .is

Innsent: 27 Mar 2012, 19:08
frá Alpina
tommi300ce skrifaði:Fór með 18" felgu sem hafði dottið á gólfið úr ca.1,5 metra hæð .
Hún var með svona 2 - 3 mm dæld að innan verðu og alveg heil að öðru leiti .

Og hvað haldið að það hafi kostað ???


9.000 kr. TAKK FYRIR

Ég hef farið með felgur í áliðjuna sem eru miðjuskakkar ,þarf að sjóða í og eru eins og egg í laginu og hef ég aldrei borgað meira en 10 þús. kall

Þetta er bara helvitis okur og ekkert annað og þangað fer ég aldrei aftur og mæli með að fólk fari í áliðjuna frakar en þetta helvítis okur.
Án þess að lasta eða hæla felgur.is ,,, heldurðu að þetta gerist bara FLISS-BANG ??

var felgan eitthvað skökk kannski ??

,, kannski er bara hellings vinna þó að dældin sé lítil,,

þetta er jú útseld vinna :idea:

Re: Felgur .is

Innsent: 27 Mar 2012, 19:54
frá Krissi kool
Hef notað þjónustuna hjá þeim einu sinni, 2 felgur skakkar, veit nú ekki alveg hvað var að þeim, var allavega ekki hægt að balancera þær.
borgaði eitthvað um 18þús fyrir báðar 17 "felgunar.
veit svosem ekkert hvort það er mikið eða ekki.

Vá þetta er alveg useless póstur hjá mér :P

Re: Felgur .is

Innsent: 28 Mar 2012, 15:10
frá GUMMCO
Klukkutíma vinna á verkstæði er frá 6 til 12 þús plús vsk,svo níu þúsund er bara normal,
alltaf fengið snögga og góða þjónustu hjá magga :tumbsup:

Re: Felgur .is

Innsent: 29 Mar 2012, 20:32
frá E-cdi
finnst allt vera dýrt þarna hjá felgur.is en það er kannski bara ég. ég vil aldrei borga mikið fyrir eitt né neitt :lol:

Re: Felgur .is

Innsent: 31 Mar 2012, 00:08
frá gmg
Er ekki allt orðir " dýrt " á Íslandi nú til dags, á ekki að fara að prenta 10.000. kr seðil ?

Re: Felgur .is

Innsent: 02 Apr 2012, 21:37
frá Mercedes-Benz
gmg skrifaði:Er ekki allt orðir " dýrt " á Íslandi nú til dags, á ekki að fara að prenta 10.000. kr seðil ?

Það eru mörg ár síðan það átti að prenta 10.000 kallinn og eflaust 20.000 kallinn líka. Þeir ættu núna að vera að spá í að hanna 50.000 kallinn en ekki þann tíuþúsundasta. :evil: