Síða 1 af 1

** Stolin kerra - Ifor Williams - Getur þú hjálpað? **

Innsent: 14 Mar 2012, 21:19
frá siggi_runar
Kerru, eins og á þessari mynd var stolið við sumarbústað í Skorradal í Borgarfirði á tímabilinu 10.febrúar til 10.mars. Kerran er Ifor Williams og er mjög heilleg. Eins og sést á mynd er kerran tveggja öxla. Heildarlengd er 4,97m og 1,73m á breidd.

[img]http://i1059.photobucket.com/albums/t43 ... 356374.jpg[/img]

Undir henni að aftan eru útdraganlegar keyrsluslyskjur (sjá mynd).

Skráninganúmer á henni er IKR29 en mögulega er búið að taka plöturnar af henni eða láta aðrar plötur á.

Kúlutenginu var læst með lykli, mögulega er búið að bora cylinderinn út eða skemma læsinguna. Læsingin sést betur á mynd.

Sá sem finnur þessa kerru þannig að hún komist í hendur fyrri eigenda má búast við góðum fundarlaunum!

Vinsamlegast hafi samband við Birgi í síma 892-2605 eða Lögregluna í Borganesi 433-7612.

[img]http://i1059.photobucket.com/albums/t43 ... ture-1.png[/img]

[img]http://i1059.photobucket.com/albums/t43 ... pture2.png[/img]

Re: ** Stolin kerra - Ifor Williams - Getur þú hjálpað? **

Innsent: 15 Mar 2012, 15:43
frá GUMMCO
Búinn að deila á Facebook :)
Slæmt að svona sé stolið

Re: ** Stolin kerra - Ifor Williams - Getur þú hjálpað? **

Innsent: 15 Mar 2012, 21:00
frá siggi_runar
Takk fyrir það.

Já þetta er hundleiðinlegt alveg... en sá sem finnur hana og lætur okkur vita getur eflaust gert eitthvað skemmtilegt fyrir fundarlaunin :)

Re: ** Stolin kerra - Ifor Williams - Getur þú hjálpað? **

Innsent: 22 Mar 2012, 00:19
frá siggi_runar
Hefur enginn séð þessa kerru?

Góð fundarlaun í boði !!

Re: ** Stolin kerra - Ifor Williams - Getur þú hjálpað? **

Innsent: 01 Apr 2012, 21:30
frá siggi_runar
Hefur einhver orðið var við kerruna?

Re: ** Stolin kerra - Ifor Williams - Getur þú hjálpað? **

Innsent: 03 Maí 2012, 23:41
frá gmg
Er þetta mál óleyst enn ?

Re: ** Stolin kerra - Ifor Williams - Getur þú hjálpað? **

Innsent: 03 Maí 2012, 23:51
frá JBV
Var ekki svona kerra auglýst í Bændablaðinu í síðustu viku? Ekki það að ég búist við að um sömu kerru sé að ræða, en það sakar ekki að leita af sér allan vafa. :|

Re: ** Stolin kerra - Ifor Williams - Getur þú hjálpað? **

Innsent: 06 Maí 2012, 23:48
frá Alpina
Hvað er nr.. á kerruni

það er skorið út í beislinu :idea: