Síða 1 af 1

Flottir þessir

Innsent: 26 Nóv 2011, 12:03
frá GUMMCO
Alltaf fundið þessir VW flottir,held að það sé bara einn hér á landi
http://www.youtube.com/watch?v=hnhfOayT ... re=related" onclick="window.open(this.href);return false;
Hvernig finnst ykkur þessir?

Re: Flottir þessir

Innsent: 26 Nóv 2011, 12:35
frá Benni
Útlitslega séð er þessi dálítið eins og ofvaxinn Passat :lol:

En hitt er að þetta ku vera ansi merkilegir bílar - frekar "sleeper-legir" en ég hef hins vegar aldrei skilið ástæðu VW að fara út í lúxusbíla. Hélt að Audi myndi duga hjá þeim í "þann pakkann" :?
Svona eins og Mercedes-Benz myndi ákveða að fara í beina samkeppni við VW með ódýri gerð bíla undir Benz nafninu :roll:

Re: Flottir þessir

Innsent: 26 Nóv 2011, 20:19
frá Hlynzi
Jú það er rétt hjá þér, það er í það minnsta 1 svona á landinu, kannski fleiri.

Mér finnst þetta vera svona þögla lúxus bifreiðin, er ekki of áberandi en lítur snyrtilega út. Rolls Royce og Maybach búa ekki yfir þeim eiginleikum. En er þetta ekki bara Audi A8 í VW nærbuxum ?

Re: Flottir þessir

Innsent: 26 Nóv 2011, 20:57
frá sveinn
Benni skrifaði:Útlitslega séð er þessi dálítið eins og ofvaxinn Passat :lol:
...svolítið til í því :wink:

Re: Flottir þessir

Innsent: 26 Nóv 2011, 21:34
frá Angelic0-
Óli Eyjólfs átti einn svartan W12 takk fyrir, svo var einn grár á Íslenskum númerum líka, sá var diesel ef að ég man rétt...

Re: Flottir þessir

Innsent: 27 Nóv 2011, 10:22
frá GUMMCO
Angelic0- skrifaði:Óli Eyjólfs átti einn svartan W12 takk fyrir, svo var einn grár á Íslenskum númerum líka, sá var diesel ef að ég man rétt...
Hef bara séð þennan gráa
Held að VW hafi gert þennan bíl fyrir sinn kúnnahóp (VW) skrítið sem það er
Diesel bíllinn V10 virðist virka asskoti vel á myndböndum ,mílunna á 13 lágum :D

Re: Flottir þessir

Innsent: 27 Nóv 2011, 18:41
frá Angelic0-
Mútta er á svona Touareg... virkar bara feyki-vel... efast um að hann fari kvartmíluna á 13sek samt :lol: gírunin í honum er frekar stupid að mér finnst :P

Hún er að fara að skipta í X5 40d (///Msports) eða ML450CDI (AMG sport)eftir áramót... ég verð nú reyndar að segja að X5 virðist meira heillandi fyrir peninginn, mengar minna eyðir minna og virðist að öllu jöfnu vera sprækari þrátt fyrir meira tog í MB og sömu hp tölur :!:

Eflaust svaka mikið inni á svona ML450CDI samt ef að menn láta mappa 8)

Re: Flottir þessir

Innsent: 02 Des 2011, 14:09
frá HAMAR
Er mamma þín að keppa í kvartmílu?

Re: Flottir þessir

Innsent: 02 Des 2011, 19:23
frá Angelic0-
Finnst þér það líklegt :lol: :?:

Re: Flottir þessir

Innsent: 02 Des 2011, 21:46
frá bjarni567
Fínir bílar hef keyrt slatta á svona en að kaupa VW á A8 verði nei þá færi ég frekar í Audi A8