Síða 1 af 2
hvað varð um gömlu benzana mína??
Innsent: 09 Mar 2011, 23:13
frá bjozzi
sælir,
mig langaði alveg óhemjumikið að spyrjast fyrir um tvo benza sem ég átti á sínum tíma.
þetta bara af forvitni.
annar er 190E 2.6 með bílnúmerið VX-236
veit að lenti í tjóni og er skráður tjónabíll... en er hann einhvers staðar i einhverjum skúr?
hinn er C36 AMG með bílnúmerið PE-693
þessi bíll er á götunni og hefur átt nokkra eigendur síðan ég átti hann.
er hann í góðu ásigkomulagi ennþá?
ef einhver á nýlegar myndir af þessum bílum þá væri gaman að fá að sjá þær
bestu kveðjur.
Bjössi
Re: hvað varð um gömlu benzana mína??
Innsent: 09 Mar 2011, 23:19
frá bjozzi
Re: hvað varð um gömlu benzana mína??
Innsent: 10 Mar 2011, 09:32
frá Ásgeir Örn
VX-236
16.09.2008 Úr umferð v/ tjóns Umferðarstofa - Borgartúni
PE-693
Þessi er nú bara í umferðinni í Reykjavík sýnist mér. Greinilega góður bíll sem hefur verið vel hugsað um, hefur aldrei fengið athugasemd í skoðun.
Re: hvað varð um gömlu benzana mína??
Innsent: 10 Mar 2011, 11:27
frá JBV
Skiptir þú ekki þessum 190E upp í C36 á sínum tíma Bjössi ?
Re: hvað varð um gömlu benzana mína??
Innsent: 11 Mar 2011, 00:05
frá Mercedes-Benz
PE693 var síðast þegar ég vissi ekki í notkun vegna bilunar í mótortölvu.
Re: hvað varð um gömlu benzana mína??
Innsent: 11 Mar 2011, 11:18
frá Björgvin
Mercedes-Benz skrifaði:PE693 var síðast þegar ég vissi ekki í notkun vegna bilunar í mótortölvu.
Ég sá minn gamla á góðu róli í Hafnarfirði fyrir ca hálfum mánuði.... Þó bíllinn sjálfur væri nú hálf sjoppulegur....
Re: hvað varð um gömlu benzana mína??
Innsent: 11 Mar 2011, 15:31
frá GunnarSmári
Stóð hann ekki fyrir utan geymslusvæðið?
Fannst ég hafa séð hann þar.
Síðan er einn C36 AMG fyrir utan DogC uppá höfða.
Re: hvað varð um gömlu benzana mína??
Innsent: 13 Mar 2011, 19:10
frá bjozzi
JBV skrifaði:Skiptir þú ekki þessum 190E upp í C36 á sínum tíma Bjössi ?
jú það passar

við björgvin höfðum skipti á þessum bílum á sínum tíma

Re: hvað varð um gömlu benzana mína??
Innsent: 30 Mar 2011, 14:45
frá Balli...
thessi 190e er onytur hann var keyrdur i stoppu!
Re: hvað varð um gömlu benzana mína??
Innsent: 30 Mar 2011, 15:17
frá Gunnar Örn
Hvað er stoppa?