Síða 1 af 1

Benz sem hatar díoður

Innsent: 06 Feb 2010, 18:23
frá E-cdi
sælir felagar.
ég er í vanda staddur. eða svo leiðis.

ég keypti díoðu perur í öll ljós á benzanum hjá mér og hann hefur engan áhuga á að fá díoðu ljós.

ef það eru díoðuperur í afturljósunum þá er hann eineygður að aftan.
ef það eru díoðuperur í stefnuljósunum þá blikka þau eins og það sé sprungin pera.
ef það eru díoðuljós í numeraljósunum þá kveiknar ekki á þeim.
ef það eru díoðu perur í mælaborðsljósunum þá get ég ekki komið perufestinguni fyrir..

hafi þið lent í þessu rugli með ykkar w124?



svo virkar ekki ljósin í miðstöðini né í ruðuupphalara tökkunum eða miðjustokknum yfir höfuð. og viðnámið fyrir það í mælaborðinu virðist ekki vera brunnið. og ljósið í mælaborðinu sjálfu virkar mjög vel.

ég er buinn að kaupa nyjar perur í miðsöðina og það en samt kveiknar ekkert ljós.

hjálp

Re: Benz sem hatar díoður

Innsent: 06 Feb 2010, 18:29
frá Loki
Ertu viss um að díóðurnar snúi rétt?

Þú getur ekki notað díðóður í stefnuljósin nema að skipta um blikkara eða setja viðnám í lögnina.

Re: Benz sem hatar díoður

Innsent: 06 Feb 2010, 19:12
frá oli marteins
Skilgreiningin á afriðilsdíóðu er:
Með háa mótstöðu í hindrunarátt en lága mótstöðu í leiðniátt.
Semsagt skiptir máli hvernig þær snúa.

Re: Benz sem hatar díoður

Innsent: 06 Feb 2010, 20:25
frá E-cdi
oli marteins skrifaði:Skilgreiningin á afriðilsdíóðu er:
Með háa mótstöðu í hindrunarátt en lága mótstöðu í leiðniátt.
Semsagt skiptir máli hvernig þær snúa.
ég prífaði á báða vegu..

Re: Benz sem hatar díoður

Innsent: 07 Feb 2010, 12:50
frá Ztebbsterinn
Tökum stefnuljósið: ef að pera með vitlausa watta tölu er sett í sætið þá virkar það eins og það vanti peru og peruljósið logar í mælaborðinu eða stefnuljósið blikkar of ört.
Sama með önnur ljós í w124, peruljósið í mælaborðinu (það sem lætur þig vita ef að pera er sprungin/óvirk) logar ef að mótstaða er önnur en upphaflega.

Þú gærir þurft að bæta mótstöðu við ljósið eða jafnvel leiða framhjá díóðunni gegnum mótstöðu.

Best er að ná tali við rafeindavirkja eða reindann mann í þeim efnum.

Re: Benz sem hatar díoður

Innsent: 07 Feb 2010, 16:07
frá E-cdi
Ztebbsterinn skrifaði:Tökum stefnuljósið: ef að pera með vitlausa watta tölu er sett í sætið þá virkar það eins og það vanti peru og peruljósið logar í mælaborðinu eða stefnuljósið blikkar of ört.
Sama með önnur ljós í w124, peruljósið í mælaborðinu (það sem lætur þig vita ef að pera er sprungin/óvirk) logar ef að mótstaða er önnur en upphaflega.

Þú gærir þurft að bæta mótstöðu við ljósið eða jafnvel leiða framhjá díóðunni gegnum mótstöðu.

Best er að ná tali við rafeindavirkja eða reindann mann í þeim efnum.
hehe já eða bara hafa orginal perurnar áfram og setja díoðu perurnar í fordinn :lol:

Re: Benz sem hatar díoður

Innsent: 07 Feb 2010, 18:35
frá Hlynzi
Verður að hafa rétt viðnám með díóðunni.

Því ljósarásirnar eru bara hannaðar miðað við X viðnám.

Re: Benz sem hatar díoður

Innsent: 07 Feb 2010, 19:46
frá E-cdi
Hlynzi skrifaði:Verður að hafa rétt viðnám með díóðunni.

Því ljósarásirnar eru bara hannaðar miðað við X viðnám.
hvað heldur þú að ford séu svo fullkomnir hehe. eru ekkert að spá í þessu :D

neinei veit ekki.

sé til. bara fá mér orginal perur í benzann, fæ mér svo bláar stefnuljósaperur sem lýsa samt appelsínugulu

Re: Benz sem hatar díoður

Innsent: 07 Feb 2010, 20:47
frá Hlynzi
E-cdi skrifaði:
Hlynzi skrifaði:Verður að hafa rétt viðnám með díóðunni.

Því ljósarásirnar eru bara hannaðar miðað við X viðnám.
hvað heldur þú að ford séu svo fullkomnir hehe. eru ekkert að spá í þessu :D

neinei veit ekki.

sé til. bara fá mér orginal perur í benzann, fæ mér svo bláar stefnuljósaperur sem lýsa samt appelsínugulu
Kannski er Fordinn bara með kerfi sem svo heppilega vill til að er líkara venjulegu perunum, eða þá að þessar díóður hafa verið miðaðar við það kerfi.