Síða 1 af 4

GMG hættir sem formaður HNEYKSLI (1. apríl ;o) )

Innsent: 01 Apr 2009, 06:50
frá GUMMCO
Já því miður þá hefur hann stigið til hliðar vegna ágreinings við restina af stjórninni.

Restin af stjórninni mun kanski komenta á þetta í dag og útskýra þetta fyrir okkur.


Kv.
Gummi

Re: GMG hættir sem formaður HNEYKSLI

Innsent: 01 Apr 2009, 09:38
frá Benni
Nei, við munum ekki tjá okkur um þetta á opinberlegum vettvangi, kemur ekki til greina!

Re: GMG hættir sem formaður HNEYKSLI

Innsent: 01 Apr 2009, 10:25
frá sveinn
Það eina sem hægt er að segja að hann hefur sínar ástæður... :roll:

...geri ráð fyrir að hann útskýri sjálfur sitt mál seinnipartinn í dag eða á morgun.

Re: GMG hættir sem formaður HNEYKSLI

Innsent: 01 Apr 2009, 12:17
frá JBV
Í ljósi þessara ömurlegu tíðinda, fer ég fram á aðlfund og nýja formannskosningu ekki seinna en STRAX! Hef heimildir fyrir því að eitthvað hafi gengið á innan stjórnar og ekki öll kurl komin til grafar enn! :shock:

Re: GMG hættir sem formaður HNEYKSLI

Innsent: 01 Apr 2009, 12:26
frá Benzari
Ekki spurning að halda fund.

Hleraði Gunna með þetta og vildi hann ekkert tjá sig. :shock: :?

Re: GMG hættir sem formaður HNEYKSLI

Innsent: 01 Apr 2009, 13:31
frá Björgvin B
Þetta er leiðinlegt að heyra gæti Gummco tekið við, ég styð hann !!

Re: GMG hættir sem formaður HNEYKSLI

Innsent: 01 Apr 2009, 14:02
frá Halldór Björn
Björgvin B skrifaði:Þetta er leiðinlegt að heyra gæti Gummco tekið við, ég styð hann !!
Fyrirhönd stjórnarinnar vildi ég bara koma þessu áleiðis(þar sem engin annar nennti að gera það!)
Stjórnarmenn og Varastjórn ætla að hittast í kvöld á Ruby Thuesday yfir borgara og frönskum og ræða málin hvað skuli vera gert og hver tekur við.

Þeir sem hafa áhuga á því að bjóða sig fram sem nýjan formann mega endilega gefa mér smá hint um það og senda mér póst, þá getur stjórnin kanski tekið ákvörðun ef réttur einstaklingurinn vill, við munum samt að öllum líkindum gefa öllum séns á að bjóða sig fram á næstu dögum en það kemur allt í ljós í kvöld þegar við setjum upplýsingar inn um hvað gerðist á fundinum.

Kv.
Halldór Björn

Re: GMG hættir sem formaður HNEYKSLI

Innsent: 01 Apr 2009, 14:20
frá sveinn
Það eina sem hægt er að segja að svo komnu máli er að ósættin snúast að hluta til um það að Gunnar Már er með hugmyndir um að sameina Mercedes-Benz klúbb Íslands við annan nýstofnaðan klúbb á hans vegum, eða Jagúarklúbb Íslands. :evil:

Þar er hann innsti koppur í búri og hefur uppi þær hugmyndir að sameinaður klúbbur eigi svo að heita:

Jaguar-Mercedes-Benz klúbbur Íslands. :tumbsdown:

Hvað finnst mönnum um þetta? Aðrir í stjórninni eru að minnsta kosti mótfallnir þessu, en Gunnar Már stendur fast á sínu. :roll:

Það sem Halldór Björn gleymdi að minnast á var að sjálfsögðu er öllum félagsbönnum boðið að koma á Ruby og taka þátt í umræðunni sem hefst stundvíslega klukkan 20:30. Fyrstu 20 fá ókeypis hamborgara í boði klúbbsins. :!:

Re: GMG hættir sem formaður HNEYKSLI

Innsent: 01 Apr 2009, 15:11
frá Þröstur
Ég býð mig fram sem formann ég vill ekki sjá einhver kattaróféti á samkomum.

Re: GMG hættir sem formaður HNEYKSLI

Innsent: 01 Apr 2009, 16:07
frá Mercedes-Benz
Þetta er náttúrulega bara fífl þessi maður hvernig hann hagar sér.... :evil: