Síða 1 af 1

Racebook.is nýjasti vettvangur bíladellukarla

Innsent: 28 Mar 2009, 12:30
frá atligu
Sælt veri fólkið

Ég tel rétt að vekja athygli á http://www.racebook.is" onclick="window.open(this.href);return false;, glænýjum vef bílavitleysinga sem hugsanlega mun gjörbylta hugarheimi og lífsskoðun milljóna...eða þannig. Racebook er alíslenskt fyrirbæri og það er enginn annar en Ríkharður Brynjólfsson hjá Miðneti sem hýsir vefinn. Kíkið endilega, við Benz-fríkin erum meira en velkomin.

Fyrst ég er byrjaður að skrifa minni ég einnig á mína eigin síðu, http://www.atlisteinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;, sem hóf göngu sína 1. febrúar. Hispurslaus umfjöllun um brjósklos, gyllinæð, neytendamál og eiginlega bara lífið í heild sinni.

Lifið heilir sem ávallt

Re: Racebook.is nýjasti vettvangur bíladellukarla

Innsent: 29 Mar 2009, 18:15
frá E-cdi
ég skráði mig inn á þennan vef. og á mailið með passwordinu minu ennþá og allt það..

en ég get ekki loggað mig inn á þetta aftur..

Re: Racebook.is nýjasti vettvangur bíladellukarla

Innsent: 04 Apr 2009, 11:14
frá Björgvin
Alltaf gaman að sjá frumleikann í Íslendingum þegar þeir brengla nöfnunum á þekktum erlendum nöfnum á sína vefi og fyrirtæki :lol: :lol:

Býst kannski við að einhver John í ameríku slái óvart inn racebook í staðinn fyrir facebook hahaha

kveðja

Re: Racebook.is nýjasti vettvangur bíladellukarla

Innsent: 07 Apr 2009, 12:27
frá Benni
atligu skrifaði:Fyrst ég er byrjaður að skrifa minni ég einnig á mína eigin síðu, http://www.atlisteinn.is, sem hóf göngu sína 1. febrúar. Hispurslaus umfjöllun um brjósklos, gyllinæð, neytendamál og eiginlega bara lífið í heild sinni.

Lifið heilir sem ávallt
Snilldarsíða hjá þér Atli Steinn, ert klárlega með húmorinn í lagi :clapping:
Þessi síða er kominn í favorites hjá mér 8)