Síða 3 af 3

Innsent: 15 Jan 2009, 21:30
frá Björgvin
Killerboot skrifaði:Allir sem óska eftir tilboði eru með einhverja tölu sem þeir sætta sig við í hausnum, sé ekki að það drepi neinn að skrifa þá tölu inn.

Ég vil svo benda þeim sem vita ekkert hvað þeir vilja fyrir bílinn að fara með hann á bílasölu og láta meta hann fyrir sig og pósta því svo í auglýsinguna.
Þeir sem nenna því ekki einusinni geta þá bara notað Uppboðshornið.

Allveg óþolandi að þurfa að draga það upp úr mönnum hvað þeir vilja fyrir hlutina. Ég persónulega nenni því ekki.
Hjartanlega sammála þessu... Ég skoða ekki einu sinni bíla þar sem kemur fram verð tilboð... nenni ekki að standa í einhverju bulli við seljendur bílanna fyrst þeir geta ekki drullast til að skella verðmiða á bílana sína....

Kveðja

verð

Innsent: 16 Jan 2009, 21:37
frá paddi
Alveg jafn gott að setja tilboð ensog að setja eitthvað fáránlega hátt verð á bílana einsog sumir gera, og eru menn ekki alltaf að reyna að græða hvort sem menn eru að selja eða kaup? Svo halda menn alltaf að þeir hafi gert svaka góð kaup og allir ánægðir. Myndi frekar vilja bara sjá auglýsingar með miklum upplýsingum um bílinn og búnað og góða lýsingu á ökutækinu. En bara mín skoðun:)