Síða 1 af 6

Dráttarvéla project

Innsent: 25 Sep 2008, 22:33
frá Hjalti
Jæja ég veit ekki hvort menn hafa áhuga á þessu en, Laugaland hf garðyrkjustöð í borgarfirðinum sem pabbi minn rekur og á, á John Deere Model M árgerð 1949, þetta er einn af 22 sem fluttir hafa verið inn af Heklu á sínum tíma og á Laugaland reyndar 2, einn sem er á uppgerðarstigi og hinn svona eiginlega bara orðinn að varahluta traktor :lol:

M módelin voru framleidd í Bandaríkjunnum og eru meðal fyrstu dráttarvélunnum búnar vökvalyftum, vélin er 2 cylendra bensínvél og gekk eins og klukka áður en hann byrjaði að leka bensíni og var lagt fyrir nokkrum árum því ekki gafst tími til að gera við hann þá og var alltaf planið að gera hann alveg 100%, og núna er ég byrjaður að gera hann almennilegann planið er að koma honum í gang og erum ég og pabbi byrjaðir að skoða varahluti í hann svo sem nýtt sæti, stýri og miklu fleira eins og sést hérna á myndunnum þarf að panta slatta af hlutum og einnig verður hann sprautaður og er búið að kaupa litinn sem er john deere græni og guli liturinn sem hefur ekki breyst neitt í mörg ár, það verður bara keypt orginal hluti sem gerir leitina af hlutunnum erfitt fyrir þar sem vélaborg umboðið núna getur ekki reddað mörgu.

En hérna eru nokkrar myndir sem ég tók í dag eins og þið sjáið er mikið verk eftir en ég vona að hann verði tilbúinn í vetur einhverntímann þar sem þessi traktor er nú alls enginn geimvísindi!
læt eitt video fylgja með af alveg eins traktor alveg æðislegt þegar hann er að starta honum og þegar hann er í gangi
:lol:

http://www.youtube.com/watch?v=Ts7d21BiWhM

[img]http://memimage.cardomain.com/member_im ... 532415-269[/img]

[img]http://memimage.cardomain.com/member_im ... 532415-269[/img]

[img]http://memimage.cardomain.com/member_im ... 532415-269[/img]

[img]http://memimage.cardomain.com/member_im ... 532415-269[/img]

bar/ber númerið Md 25 og einnig er M 26 í eigu Laugalands

[img]http://memimage.cardomain.com/member_im ... 532415-269[/img]

[img]http://memimage.cardomain.com/member_im ... 223215-269[/img]

Innsent: 25 Sep 2008, 22:53
frá JBV
Flott project! Sem gamalt tractors nörd þá finnst mér gaman að fylgjast með svona verkefnum. :wink:

Innsent: 26 Sep 2008, 00:12
frá hjalti.g
Verður að koma með regluleg update af þessu, bara snilldarproject :tumbsup:

Re: Dráttarvéla project

Innsent: 26 Sep 2008, 10:56
frá sveinn
það verður gaman að fylgjast með þessu hjá ykkur feðgum Hjalti.

Heyrðu, þú ferð bara beint á síðasta og æðsta stig fornbílamennskunar, nirvana fornbílamannsins, en stigin eru þrjú: 1. uppgerð fornbíls, 2. uppgerð vörubíls og 3. uppgerð dráttarvélar! :wink: :lol: ...ég er svo óþroskaður að ég kemst ekki upp úr fyrst stiginu :lol:

Fyndið á sjá kveikjuna þarna, bara venjulegt 4cyl kveikjulok og tappar í tveim götum og þræðir úr hinum tveim. :lol:

[img]http://memimage.cardomain.com/member_im ... 532415-269[/img]

Innsent: 26 Sep 2008, 10:57
frá Ásgeir Yngvi
ég sé nú ekki myndirnar... en jú maður hefur nú séð traktorinn milljón sinnum :lol: :wink:


En bar hann númerin M 25 og M 26..... erum við ekki frekar að tala um Md 25 og 26 ?

Innsent: 26 Sep 2008, 12:45
frá Hjalti
auðvitað var það md 25 en hann bar ekki md 26 var bara að segja að m 26 er líka í eigu Laugalands eða afa míns núna.

Innsent: 26 Sep 2008, 12:47
frá Hjalti
en já þyrfti að redda mér vörubíl til að gera upp, hvernig er það Gummi K er Kaðalstaða benzinn farinn?

Innsent: 26 Sep 2008, 16:00
frá Ásgeir Yngvi
Hjalti skrifaði:en já þyrfti að redda mér vörubíl til að gera upp, hvernig er það Gummi K er Kaðalstaða benzinn farinn?

Hahahahaha Hjalti þú ert yndislegur...

Förum aðeins yfir það hvað þú ert að vinna í þessa daganna...

1. 500 SE

2. BMW sexa

3. 280 SE w126

4. Ford Econoline

5. JOHN DEERE

svo á laugardaginn bætist við...

6. 280 SE w116

..og svo ertu að óska eftir vörubíl.


Nóg að gera

:lol:




og ég geri ekkert :oops:

Innsent: 26 Sep 2008, 19:41
frá Hjalti
ég á við sjúkdóm að stríða safna ónýtum bílum :( :) :o :D

Innsent: 26 Sep 2008, 19:48
frá Hjalti
jæja grunnaði vélarhlífina í dag ásamt bensíntank og hliðarhlífunnum

tók bara 2 myndir reyndar



[img]http://memimage.cardomain.com/member_im ... 184712-270[/img]


[img]http://memimage.cardomain.com/member_im ... 184712-270[/img]