Síða 1 af 1

Samkoma þann 26. janúar

Innsent: 23 Jan 2015, 19:00
frá Logi
Já, fyrsta samkoma ársins verður á mánudaginn :wink:

Samkoma mánudaginn 26. janúar klukkan 20:00

Staðsetning:
Í bílakjallaranum undir Smáratorgi í Kópavogi. Innkeyrsla er í vesturenda Smáratorgs (undir Bónus og á móti Metró) - sjá á meðfylgjandi mynd merkt með X)

Hraðakstur og spól er að sjálfsögðu bannað :!: Vonumst til að sjá sem flesta :mercedes:

Fyrir hönd stjórnar MBKÍ,

Re: Samkoma mánudagskvöldið 26. janúar

Innsent: 26 Jan 2015, 11:25
frá Benni
Kemst líklega ekki í kvöld en það væri athugandi fyrir ykkur að skoða næst nýja bílakjallarann undir Garðatorgi. Þar er bæði bjart inni, ekki of kalt, stutt í verslun (Víðir Garðatorgi - ef menn eru svangir ;) ) og fáir bílar þar inni eins og er enda húsið enn í byggingu :lol:

Re: Samkoma mánudagskvöldið 26. janúar

Innsent: 27 Jan 2015, 12:16
frá Benni
Renndi þarna framhjá um kl. 20:30 og það var enginn á svæðinu...
Mætti enginn eða?

Re: Samkoma mánudagskvöldið 26. janúar

Innsent: 27 Jan 2015, 20:46
frá BaraBenz
Benni skrifaði:Renndi þarna framhjá um kl. 20:30 og það var enginn á svæðinu...
Mætti enginn eða?
Veit það ekki en mánudagskvöld eru yfirleitt bókuð hjá mér.

Kannski stafar það af því þetta var ekki sett inn á fésbókina.

Það koma fáir hingað orðið. Sýnist meira að segja Sveinn vera því sem næst hættur að kíkja hingað inn.