Síða 1 af 1

Jeppaferð MBkÍ og Öskju

Innsent: 01 Okt 2014, 16:15
frá Lárusson
Takið laugardaginn 11. október frá ef þið hafið aðgang að Mercedes-Benz jeppa, en þá verður farið í einsdags ferð um suðurland og lagt af stað frá Öskju. Nánari lýsing kemur hér bráðlega og auðvitað eru allir velkomnir.

Re: Jeppaferð MBkÍ og Öskju

Innsent: 04 Okt 2014, 12:28
frá Lárusson
Bílaumboðið Askja og Mercedes-Benz klúbburinn á Íslandi vilja bjóða þér og þínum að taka þátt í Mercedes-Benz jeppaferð 11. október næstkomandi. Þetta verður fyrsta ferðin sem við stöndum fyrir og hlökkum við til að sjá ykkur sem flest. Nauðsynlegt er að skrá sig í ferðina og fer skráning fram í síma 590 2100 og á netfanginu askja@askja.is. Skráningu lýkur 10. október.


Skipulag ferðar verður eftirfarandi:


* Mæting í Öskju, Krókhálsi 11, kl. 8:30 og staðgóður morgunverður í boði Öskju, brottför kl 9:00.

* Ekið uppí Mosfellsdal, upp með Leirvogsánni, langleiðina upp að Skálafelli. Grófur vegur að hluta, ekið nokkrum sinnum yfir ána.

* Ekið til Þingvalla, stutt áning þar kl. 10:00. Stutt skoðunarferð um svæðið ef veður leyfir. Ekið í norður og yfir Tröllháls, um Meyjarsæti, og hjá Sandkluftavatni.

* Ekið vestur áleiðis niður í Lundareykjadal, og farinn grófur línuvegur niður í Skorradal. Ekinn grófur jeppaslóði sunnan megin við Skorradalsvatn.

* Ekið yfir í Svínadal og Hvalfjörð áleiðis til Reykjavíkur.

* Ferðin endar formlega í grillveislu í félagsheimilinu Dreng í Kjósinni um tvö leytið.


Ofangreind leið eru fær óbreyttum jeppum, en sumar leiðir eru meira krefjandi en aðrar. Þeir ökumenn sem treysta sér einhverra hluta vegna ekki í allar „torfærur“ geta valið aðra leið og hitt hópinn á næstu gatnamótum. T.d. farið norðan megin við Skorradalsvatn, eða ekið hefbundna leið upp Mosfellsdal. Þátttakendur taka þátt í þessum viðburði á eigin ábyrgð. Fararstjóri verður með í för og leiðarlýsingu verður útvarpað.

Re: Jeppaferð MBkÍ og Öskju

Innsent: 05 Okt 2014, 02:10
frá Benni
Glæsilegt :)

Verst að maður kemst ekki með :(