Síða 1 af 2

Samkoma 30. september 2013 kl. 20:00

Innsent: 29 Sep 2013, 23:10
frá Stjórn MBKÍ
Í framhaldi af góðu innleggi Tedda Benzara þá er hér tilkynnt fyrsta samkoman í haust og fyrsta "dekkjasparkarasamkoman" innanhúss í þó nokkurn tíma :lol:

Samkoma mánudaginn 30 september.
Klukkan 20:02


Staðsetning:
Staðsetningin er sú sama og á vetrarsamkomum undanfarinna ára,
Í bílakjallaranum undir Smáratorgi í Kópavogi. Innkeyrsla er í vesturenda Smáratorgs (undir Bónus og á móti Metró - sjá á meðfylgjandi mynd merkt með X) eða austurenda turnsins (vinstramegin við The Pier).

Hraðakstur og spól er að sjálfsögðu bannað :!: Ef góð mæting er og almennur áhugi verður hugsanlega rúntur í framhaldinu eða að við skellum okkur bara á kaffihús :-D

Stjórn MBKÍ

Re: Samkoma 30. september 2013 kl. 20:00

Innsent: 29 Sep 2013, 23:16
frá Stjórn MBKÍ
Að sjálfsögðu eru allir áhugamenn um Mercedes-Benz og bíla yfirhöfuð velkomnir á samkomur MBKÍ, hvort sem þeir eiga Benz eður ei :D

Re: Samkoma 30. september 2013 kl. 20:00

Innsent: 30 Sep 2013, 00:03
frá Benni
Vefstjórn skrifaði:Að sjálfsögðu eru allir áhugamenn um Mercedes-Benz og bíla yfirhöfuð velkomnir á samkomur MBKÍ, hvort sem þeir eiga Benz eður ei :D
Er kominn aftur á Benz svo að ég mæti á Benz í fyrsta skiptið frá því að ég mætti á ML 350 í des. 2010 :lol:

Þannig að menn geta mætt á hvaða bíl sem er :tumbsup2:

Re: Samkoma 30. september 2013 kl. 20:00

Innsent: 30 Sep 2013, 00:30
frá gmg
Ætla að reyna að mæta á 190 E bíl dóttur minnar

Re: Samkoma 30. september 2013 kl. 20:00

Innsent: 30 Sep 2013, 08:47
frá JBV
Back to basic :D Mæti jafnvel með stóru kaffikönnuna af tilefni fyrstu dekkjasparkara samkomu í bílakjallaranum í langan tíma. :wink:

Re: Samkoma 30. september 2013 kl. 20:00

Innsent: 30 Sep 2013, 09:24
frá Benni
JBV skrifaði:Back to basic :D Mæti jafnvel með stóru kaffikönnuna af tilefni fyrstu dekkjasparkara samkomu í bílakjallaranum í langan tíma. :wink:
Er hún enn "á lífi"? :lol:

Re: Samkoma 30. september 2013 kl. 20:00

Innsent: 30 Sep 2013, 13:07
frá JBV
Já, reyndar aðeins löskuð greyið eftir kollsteypu á einum dekkjasparkara hittingnum. En gerir sitt gagn :D

Re: Samkoma 30. september 2013 kl. 20:00

Innsent: 30 Sep 2013, 16:14
frá Logi
Hugsa að ég mæti á 290TD :mercedes:

Re: Samkoma 30. september 2013 kl. 20:00

Innsent: 30 Sep 2013, 23:47
frá Benni
Ágætis mæting m.v. stuttan fyrirvara :mrgreen:

Ætli það hafi ekki verið um 15-20 manns í heildina sem mætti og þáðu flestir kaffi og smákökur :D

Hér eru nokkrar GSM myndir en aðstæður á staðnum bjóða ekki upp á "úrvalsmyndatöku" :lol:

Rúnar Logi Vilmundur Grétar - flottur litur á þessum :tumbsup2: Fúsi Benni Jón Ketils Jón Birgir Sveinn Gunnar Már Hallgrímur Og inn á milli má sjá glitta í strumpastrætóinn hans Hjalta :wink:

Re: Samkoma 30. september 2013 kl. 20:00

Innsent: 01 Okt 2013, 19:42
frá BaraBenz
Benni skrifaði:Ágætis mæting m.v. stuttan fyrirvara :mrgreen:

Ætli það hafi ekki verið um 15-20 manns í heildina sem mætti og þáðu flestir kaffi og smákökur :D

Hér eru nokkrar GSM myndir en aðstæður á staðnum bjóða ekki upp á "úrvalsmyndatöku" :lol:
Greinilega tekið á Samsung síma :D :twisted: